25.8.04
Vá, hvað ég var spennt í gær! Ég var heima í stofu með stórfjölskyldunni. Þegar keppnin stóð sem hæst vorum við 11 saman inn í stofu hjá mömmu og pabba og þar var hver öðrum stressaðari. Amma lokaði augunum, mamma faldi sig á bak við mig og skalf og nötraði af stressi, litlu frændsystkini mín hoppuðu og skoppuðu og vonuðu að ráin myndi detta hjá hinum stelpunum og það vonuðum við reyndar líka öll. Illkvittnin alveg í hámarki! Taugarnar voru sem sagt þandar til hins ítrasta og náðu hámarki í lokatilrauninni við 4.40.
Þórey stóð sig eins og hetja og var sjálfri sér, landi og þjóð til mikils sóma. Glæsilegt afrek og frábær árangur. Líka ótrúlegt að hún hafi náð þessu á stöng sem hún hafði aldrei notað áður - vá, ég hefði verið stressuð að nota hana...reyndar eru litlir möguleikar á því að ég noti einhvern tímann stöng, ég held að þetta sé ekki grein fyrir mig!

Ótrúlega gaman að hafa Ólympíuleikana í sjónvarpinu allan daginn. Ég sat límd fyrir framan skjáinn frá því að ég kom heim í gær og fram til 11 í gærkvöldi. Ég hætti þegar endursýning á Ísland-Brasilía byrjaði!
Annars er ég búin að ná mér í einhverja pest. Er með hálsbólgu og kvef, illt í hausnum og hálf slöpp í maganum. Gekk svo illa að sofna í gær þar sem önnur nösin var stífluð og ég var eitthvað svo munnvatnsrík en fannst vont að kyngja og þegar maður er að reyna að kyngja ekki er það einmitt það eina sem maður getur hugsað um!

Óþolandi alveg!

Hafdís skrifaði klukkan 12:58 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli