|
|||||||||||||||||||
|
9.8.04
Sexí kennslukona?
Eftir bikardjammið á laugardaginn skelltum við Sveinbjörn okkur í röð á matsölustað til að fá okkur smá næringu eftir brjálaðann dans og hristing á Pravda. Þegar við vorum nýkomin í röðina gaf kona sig á tal við mig og spurði mig afhverju ég myndi klæða mig svona. Ég var í hvítu hnésíðu pilsi sem var þröngt yfir rassinn en víkkaði út, auk þess var ég í bleikum bol sem beraði axlirnar en var ekki fleygin að öðru leyti. Yfir þetta var ég svo í hvítum jakka í stíl við pilsið og hvítum skóm. Ég svaraði því til að Sveinbjörn væri sá eini sem mér fyndist ég þurfa að sýna eitthvað meira - mér fannst fötin mín auk þess alveg nógu þröng og þau sýndu að mínu mati alveg nógu mikið. Hún benti mér á að ég væri sexí kona og að henni fyndist að ég ætti ekki að klæða mig svona kennslukonulega.Núna eru nokkur ár síðan ég var í grunn-og menntaskóla en þá klæddu kennslukonur sig ekki í þröng hvít föt og voru berleggjaðar en ég ákvað að hún vissi eitthvað meira um þetta en ég og maldaði bara í móinn. Auk þess nefndi hún að hún hefði frekar haldið að við Sveinbjörn værum ókunnug frekar en að vera ástfangin. Þegar hún var búin að tauta um þetta í smá stund spurði ég á móti hvort að hún vildi að ég myndi klæða mig druslulegra! Hún móðgaðist eitthvað við druslutitilinn þar sem hún var í MJÖG fleygnum svörtum bol sem faldi ekki mikið og þröngum gallabuxum við. Hún var þarna með kærastanum sínum sem var enskur og hóf á þessum tímapunkti að segja honum að hún hefði sagt að ég væri kennslukonuleg og ég hefði á móti sagt að hún væri SLUT. Mér finnst nú drusla ekki eins ljótt orð og slut en það er annað mál. Eftir að hafa komið gæjanum sínum inn í þetta fór hún að yfirheyra Sveinbjörn á ensku um hvort að við værum ástfangin. Eftir að hafa rætt þetta í smá stund og nota bene mér fannst þetta nokkuð skondnar umræður um hvor okkar væri nú getnaðarlegri ákváðum við að ráðfæra okkur við mann sem stóð fyrir aftan í röðinni og fylgdist spenntur með umræðunum. Hann fékk sem sagt að dæma hvor okkar væri meira sexí og lukkulega var hann á mínu bandi. Þess ber þó að geta að viðmælandi minn var einum 9 árum eldri en ég, ljóshærð og frekar grönn. Hún var ekki ánægð með tapið og baðst afsökunar á því að hafa ekki vitað að það væri brúðkaupsdagurinn minn í dag en ef hún hefði vitað það hefði hún mætt í hvítu. Púkinn í mér blossaði all illilega upp um þetta leyti og því sagði ég henni að hafa ekki áhyggjur af því þó svo að hún hefði gert það hefði hún ekki skyggt á mig. Hún varð verulega fúl yfir þessari athugasemd minni en fann ekkert betra svar en að segja að ég væri hallærisleg. Þá ákvað ég að það væri tími til kominn að hætta þessu heimskulega spjalli og fór að einbeita mér að því að finna út hvað mig langaði í. Konan talaði ekki meira við mig og var bara svekkt. Eftir á að hyggja var þetta ferlega lélegt af mér að nýta mér ágætt sjálfsöryggi mitt til þess að drepa annað sjálfsálit niður. Hún var nefnilega ferlega ánægð með sig þegar hún mætti á svæðið en það fór eitthvað forgörðum eftir því sem leið á samtalið. Ég skammast mín eiginlega bara fyrir þetta núna og ef ég lenti í þessu aftur myndi ég alla vega reyna að sannfæra greyið um að hún væri mun getnaðarlegri og það að sýna allt nema geirvörtuna gerði gæfumuninn. Ég get nefnilega verið einum of illkvittin og viðurkenni að ég hafði nú lúmskt gaman af þessum umræðum. Ég hugsa mig nú samt tvisvar um ef ég kemst í þessar aðstæður aftur! Hafdís skrifaði klukkan 1:25 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||