|
|||||||||||||||||||
|
13.8.04
Ljóskan hún ég!
Þar sem sólin skein skært ákvað yfirmaðurinn minn að gefa helmingi starfsfólksins frí í gær frá kl.2 og hinum frí frá 2 í dag. Ég var ein af þeim heppnu sem fór í gær. Glöð í hjarta valhoppaði ég út úr húsinu og upp í gufubaðið sem var í bílnum hennar tengdó. Við erum með hann í láni á meðan hún er í ferðalagi erlendis. Ég dreif mig heim á leið og reyndi að draga sárlasinn unnusta minn upp úr sófanum og undan teppinu. Hann var ekki alveg á því og því brá ég á það ráð að hringja í Kristínu Birnu vinkonu mína og reyna að plata hana í að gera eitthvað skemmtilegt með mér. Hún var ekki alveg búin í vinnunni og því hringdi ég í Ernu mína og við ákváðum að fara í sund. Erna var þó aðeins að vesenast eins og vanalega og við ákváðum því að hittast bara eftir rúmlega hálftíma. Mig grunaði að hún yrði of sein þar sem það kemur stundum fyrir og var því ekkert að drífa mig. Fór út á svalir og las soldið í bókinni minni. Eftir að hafa ákveðið í hverju ég ætti að fara í saumaklúbbinn um kvöldið - var að leita að sumarlegum klæðnaði, ákvað ég að það væri nú kannski sniðugt að fara á æfingu fyrir sundferðina en ekki eftir eins og ég hafði fyrst ákveðið. Dreif mig því í íþróttafötin sem ég var búin að pakka og henti fötunum ofan í tösku. Síðan lét ég Ernu vita og stökk út! Var alveg að fíla mig í stuttum tights og bol með sólgleraugu og allar rúður niðri syngjandi með stuðlagi í útvarpinu. Ég tók svaðalega æfingu - var brjálæðislega dugleg svona ein og yfirgefin upp á Valbjarnarvelli. Fannst samt voða notalegt að enginn væri að horfa á mig og því gæti ég bara neglt á þetta og verið þreytt og hálfdauð þarna á grasinu. Tók einmitt 6x60 sekúndna spretti með 60 sekúndum í hvíld. Sem sagt hlaup í mínútu - hvíld í mínútu. Þetta tók ágætlega á... Eftir að hafa teygt og fræðst um inntökupróf í lögregluna um leið dreif ég mig af stað í sund. Glöð í hjarta keyrði ég framhjá Glæsibæ og yfir brúnna þarna rétt hjá MS. Þegar ég var rétt komin niður í beygjuna sem leiðir mann niður á Miklubraut gafst bílinn upp. Ég var svona 2 sekúndur að fatta að tankurinn væri tómur - ég var nefnilega á leiðinni á bensínstöð þar sem mig grunaði að bensínið færi að klárast. Land Roverinn kemur ekki með neitt ljós þegar minnkar í kútnum og því var ég ekki alveg nógu mikið með þetta á hreinu svona í góða veðrinu. Gamall maður stoppaði fljótlega og reyndi að ræða við mig en ég skildi ekkert hvað hann sagði svona langt í burtu. Ég hringdi í Sveinbjörn sem gat í raun ekkert gert nema hlegið þar sem bílinn er í lagningu. Maðurinn kom nær og var að reyna að segja mér eitthvað en þá áttaði ég mig einmitt á því afhverju ég hafði ekki skilið hann. Hann hafði líklega fengið heilablóðfall einhvern tímann og var því mjög óskiljanlegur og eiginlega alveg óskiljanlegur. Ég vissi ekkert hvað hann var að bjóða mér og var ekki á því að fara upp í sendiferðarbíl með mann sem slefaði og ég skildi ekkert hvað sagði. Hann hélt einmitt á súkkulaðiplötu í annarra hendinni og bauð mér bita áður en ég náði að gera honum grein fyrir að vinkona mín væri á leiðinni til að bjarga mér. Guðrún Inga vinkona mín býr í Skeiðarvoginum og skaust því bara, pikkaði mig upp og beint á bensínstöð. Þar fjárfesti ég í bensínbrúsa sem ég borgaði heilar 500 krónur fyrir. Það var ekki fyrr en löngu seinna að ég áttaði mig á því að brúsinn átti að kosta 500 krónur einn og sér og 500 krónurnar fást endurgreiddar þegar honum er skilað og því fékk ég þessa 5 ltr. ókeypis. Takk ESSO! Við gátum dælt bensíninu á bílinn og ég brunaði á ódýrustu bensínstöð í nágreninu og setti nokkra lítra til viðbótar svo að Sveinbjörn kæmist til Keflavíkur daginn eftir (í dag). Eftir þessa svaðilför ákvað ég að fara bara og kaupa eitthvað í matinn og fara heim. Stelpurnar voru á þessum tímapunkti búnar að vera rúmlega 2 tíma í sundi og ég efaðist um að þolið væri mikið meira í þessum hita. Þegar ég kom heim opnaði ég afturhurðina til að sækja íþróttatöskuna en sá þá að ég hafði gleymt henni. Ég skildi hana eftir inni í forstofu og því var ég aldrei með sunddótið. Gott Hafdís. Þannig séð var ég heppin að hafa aldrei komist upp í Árbæ. Ég fékk ókeypis bensín, rúnt með vinkonu minni, hlátur frá einum vegfaranda og nokkur tilboð um aðstoð. Það kom mér reyndar soldið á óvart hvað fáir stoppuð. Einn bauð mér aðstoð sem ég afþakkaði og ein kona bauðst til að leyfa mér að hringja! Samt mjög fallegt af þeim og gaman að vita að Íslendingar hafa þetta í sér! Já, það er stundum spurning í hvaða draumaheimi ég bý! Hafdís skrifaði klukkan 1:03 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||