12.8.04
Líf mitt í hnotskurn:

-ég er með ofnæmi dauðans. Lekur úr öllum holum í andlitinu.
- ég er á æfingaprógrammi dauðans og er með harðsperrur á stöðum sem ég vissi ekki að væru til.
- ég er búin að vera hálfslöpp í þessar viku, með hausverk og leiðindi.
- það er OF heitt úti.
-Ég á bara eftir að vinna í tvo daga og svo fæ ég rúmlega vikufrí til að læra
-Það er ekki gott að keyra Land Rover jeppling - Imprezan er miklu betri.
- Ég er komin með eðal æfingafélaga sem er í senn duglegur og skemmtilegur! Hann er svo yndislegur þessi rauðhærði glókollur.
-það er gaman að geta verið í pilsi í vinnunni!
-ég fæ kaffi og kökur í kvöld ;) Vei,Vei...
-ég eignaðist litla frænku á mánudaginn og kíkti á hana í gær. Hún er ofsalega sæt og fín en um leið ofsalega lítil og fíngerð. Ég fékk að máta ;)


Hafdís skrifaði klukkan 9:07 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli