26.8.04
Ég ákvað að taka mér árlega íþróttapásu í prófatörn og framlengdi hana í þessari viku þar sem ég náði mér í einhverja kvefpest og leiðindi og hef ekki mikinn áhuga á að verða veik. Hef samt hugsað mér að stytta þetta fyrirhugaða frí mitt þar sem þetta hreyfingarleysi veldur bara hugarangri, leiða, þreytu og sukkáhuga. Ég mæli sem sagt ekki með algeru hreyfingarleysi! Æfingaprógrammið mitt er ekki af verri endanum og hyggst ég verða komin í alveg svaðalegt form þegar uppbyggingartímabilið byrjar í byrjun október. Þá hef ég kannski smá séns á að narta í hælana á hinum skvísunum! Hlakka eiginlega bara svakalega til að byrja aftur. Er ekki hrifin af aðgerðarleysinu. Grunar samt að ég fari út að labba eða skokka í kvöld eftir útsendinguna frá Ólympíuleikunum. Reyndar má skella smá skuld á leikana þar sem ég sit límd fyrir framan sjónvarpið og horfi á frjálsar íþróttir og annað áhugavert.
Sigurjón er á sama prógrammi og ég var á/verð á og hann er komin í svaðalegt form svo að ég reikna með því sama eftir þessar rúmu 4 vikur! Ú, get varla beðið eftir að fara að byrja að æfa á fullu á ný og þá verð ég vonandi í svaðalegu formi næsta sumar ;) Ætla samt bara að miða við sjálfa mig og ég var síðast í svaða formi sumarið 2001 og veturinn 2002 en ég meiddist í mars og gat varla keppt neitt allt árið og síðan þá hef ég verið í ruglinu! Núna hef ég frelsast á ný og bætingabakterína blómstar í mér!

Góðir hlutir gerast hægt!

Hafdís skrifaði klukkan 7:50 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli