|
|||||||||||||||||||
|
15.8.04
Ég komst að því á föstudaginn að athyglisgáfa mín liggur á mörgum sviðum. Ég er mjög eftirtektarsöm en held að eftirtektinni sé ekki alltaf beint að réttum sviðum. Á leiknum Víkingur-Keflavík á föstudaginn tók ég til að mynda eftir því að maðurinn fyrir framan mig var ekki með neina nögl á löngutöng vinstri handar, að sonur hans fékk sleikjó og eitt sett og drakk bleikan svala, að maðurinn við hliðina á mér horfði álíka mikið á mig og leikinn og að gaur sem sat í röðinni fyrir framan mig kunni ekki að setja á sig derhúfu - setti hana of neðarlega og togaði hana svo upp með þeim afleiðingum að fullt af hári sem átti að vera niður fór upp á við. Ekki alveg nógu gott útlitslega. Ég tók þó líka eftir atriðum sem tengdust leiknum. Keflvíkingar eru í rauðum sokkum við dökkbláa búninginn sem mér finnst ekki alveg passa. Víkingar eru aðeins meira í stíl. Dómari leiksins var skelfilegur vægast sagt og núna er ég farin að skilja gagnrýni Orra Freys Hjaltalín sem einnig þekkist sem unnustu Tótu litlu. Þó að ég sé ekki mikill aðdáandi Víkings var ég orðin alveg brjáluð út í Jóa Valgeirs, hann kann alls ekki að dæma greyið. Þeir hjá KSÍ hafa verið á einhverju sýrutrippi þegar hann fékk dómararéttindin.
Ég er komin í vikufrí frá Íslandsbanka og ætla að freista þess að læra nógu mikið fyrir prófið mitt sem er mánudaginn 23.ágúst. Við Sveinbjörn erum að vona að frændi hans láni okkur sumarbústaðinn sinn svo að við freistumst ekki til að horfa á Enska boltann, Ólympíuleikana og annað skemmtilegt sem sjónvarpið hefur upp á að bjóða. Auk þess þarf að fela CM4 fyrir Sveinbirni sem einbeitir sér meira að því að gera Liverpool að meistara heldur en að því að beita ummyndum Fourier og Laplace. Ég lái honum það svo sem ekki þar sem fótboltinn er mun meira spennandi. Við erum samt að hugsa um að taka okkur smá pásu í kvöld, skella okkur í mat til mömmu og fá köku og fara svo á TROY - loksins. Ef ekkert heyrist frá mér á næstunni er ég sem sagt farin upp í bústað. Þeir sem halda að söknuðurinn geri út af við þá er beint á að notast við GSM-símann. Ég var nefnilega að fá svo skemmtilega nýja hringingu sem gleður mjög svo ekki vera feimin ;) Hafdís skrifaði klukkan 5:07 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||