|
|||||||||||||||||||
|
6.8.04
Ég fór að velta fyrir mér afmælum og afmælisgjöfum. Ég man nefnilega sérstaklega eftir nokkrum afmælunum mínum og þá sérstaklega eftir gjöfunum sem ég fékk - auðvitað.
Ég held að bestasta besta afmælisgjöf sem ég hef fengið sé frá mömmu og pabba. Ég varð geðveikt spennt á 12 ára afmælinu mínu ef ég man rétt, mig langaði í ýmislegt og var búin að gera mitt besta til að tilkynna foreldrum mínum hvað það væri en iðulega fékk ég dræmar undirtektir. Aðfaranótt afmælisdagsins svaf ég lítið eins og vanalega vegna spennings og var orðin nokkuð hress kl.5 um morguninn - sér í lagi þegar ég tók eftir því að það var pakki á gólfinu. Ég viðurkenni að ég var samt soldið svekkt þar sem hann var lítill og ég var nokkuð fljót að átta mig á því að það sem var efst á óskalistanum kæmist ekki í pakkann. Ég opnaði hann og í pakkanum var sjampó, hárnæring og miði sem á stóð að alvöru gjöfin mín væri inn í fataskáp. Þar var einmitt NINTENDO tölva en hún var efst á óskalistanum þetta árið. Ég get heldur ekki líst kætingnum. Klukkan var bara sex þar sem ég var búin að reyna að berjast við að sofna aftur en eftir þetta gat ég voða lítið sofnað. Þetta var líka túrbó útgáfan en það þýddi að 4 gátu spilað saman og að í Track and Field leiknum þurfti maður bara að halda takkanum inni en ekki að ýta stanslaust á a og b takkann! Ég gat þó hamið mig eitthvað fram eftir morgni þangað til að ég vakti foreldra mína og bað pabba að tengja tölvuna við sjónvarpið! Án efa eftirminnilegasta gjöfin mín. Næst á listanum yrði ferðageislaspilari sem ég fékk einmitt líka í afmælisgjöf - ég var alsæl með hann líka og notaði hann mikið! Með bestu gjöfum sem ég hef fengið er líka útskriftargjöfin frá foreldrum mínum. Þau gáfu mér ferð á Old Trafford með pabba - þetta var allt skrifað á svaka flott plagg og sérlega vel orðað eins og móður minni er tamt og ég gat varla lesið þetta upphátt í veislunni fyrir kæti! Þetta endaði reyndar með því að ég fór með Sveinbirni til Parísar og Þýskalands í staðinn fyrir að fara í fótboltaferð með pabba en einhvern daginn skal ég sko skella mér til Manchester með fótboltabullunni minni honum föður mínum og kyrja slagara! Parísarferðin var þó sérlega yndisleg líka og Sveinbjörn græddi svo sannarlega á útskriftinni minni! Þetta voru þrjár eftirminnilegustu gjafirnar mínar. Hafdís skrifaði klukkan 10:43 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||