1.8.04
Ég er búin að léttast um rúm 5 kíló!

Nokkrar af uppáhaldspersónunum mínum kíktu í heimsókn í gærkvöldi og héldu uppi fjörinu. Sigurjón.com, betri helmingurinn hans Jóhanna og verri helmingurinn hans Árni.hamstur.is. Unnsteinn og Auður komu kát frá Hveragerði til að heilsa upp á liðið og stuttu seinna rak Einar Karl inn nefið. Hérna var mikið hlegið og gert grín en eins og vanalega var það flest á minn kostnað en það er ekkert nýtt. Sveinbjörn sló í gegn með því að sýna liðinu morgunverðarskálina mína og hinir fengu hlátrasköll af því einu saman að kalla mig bollu. Mikið var gert í því að reyna að fá mig til að skokka sem flesta hringi niður á velli (sbr. yfirlýsingin hér að neðan) og Sigurjón laug því til að ég skuldaði 1600 m. Ég er kona minna orða og því hleyp ég þessa metra þó svo að ég muni ekki eftir því að hafa nefnt bannorðið. Í öllu þessu bollutali skellti Unnsteinn sér á vigtina inn á klósetti og sagði að hún væri ekki rétt, að hún sýndi svona 3-5 kílóum of mikið miðað við að hann væri í fötum. Auðvitað þurftu allir að prófa og komust að því að þetta væri rétt hjá honum. Glöð í hjarta get ég því dregið 3-5 kíló af tölunni sem stendur á vigtinni eftir því hvað talan á skjánum er há ;)
Eftir að hafa skemmt okkur hér til þrjú ákváðu Unnsteinn og Auður að það væri kominn tími á sig og drifu sig heim en hinir ákváðu að kíkja á liðið niður í bæ! Þar mátti aðallega finna einstæða foreldra í leit að hamingju og aðra sem ég þekkti ekki. Þó rákumst við á Stefán Má umvafin fögrum meyjum eins og vanalega og þar var meðal annars reynt að komast að samkomulagi um sameiginlegt bikardjamm risanna tveggja - ÍR og UMSS - vonandi verður það að veruleika.
Ég fór síðan á vigtina í morgun til að sjá hvað ég væri í raun þung og komst þá að því að ég er búin að léttast um 2 kíló á tæplega viku. Það var sem sagt glatt á Eggertsgötunni í morgun. Skemmtilegt mjög að vita að takmarkið er ekki tveggja stafa tala lengur!

Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og vil ég þakka ofantöldum fyrir komuna og vona að þau komi sem oftast í heimsókn.


Hafdís skrifaði klukkan 2:44 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli