|
|||||||||||||||||||
|
31.8.04
Ég efast ekki um að pizzur frá Eldsmiðjunni séu bestu pizzur í heimi.
Sveinbjörn fékk að vita að hann hefði náð Stærðfræðigreiningu IVB með glans í gær og því útskrifast þessi elska 23.október næst komandi. Í tilefni þess splæsti ég í pizzu handa okkur. Eftir að hafa smakkað pizzur frá Eldsmiðjunni er ekki aftur snúið. Þær eru svaðalega góðar! Sjálf er ég ekki búin að fá mína einkunn en kíki reglulega á heimasvæðið mitt til að tékka. Ég er auk þess vel slöpp og sljó í dag og líður ekkert sérlega vel en er að hugsa um að harka af mér í vinnunni þar sem þetta er jú næst síðasti dagurinn minn. Það lítur allt út fyrir að hádegið mitt verði með daprasta móti þar sem aðrir sumarstarfsmenn eru horfnir á braut og uppáhalds samstarfskona mín er veik í dag - ekki ánægð með hana. Sjálf hefði ég betur hringt mig veika þar sem hálsinn á mér er ekki sterkur í dag. Get varla drukkið vatn og líður hálfpartinn eins og þegar kirtlarnir voru teknir úr mér í fyrra! Ég er samt svo mikill nagli! Á morgun hyggst ég koma samstarfsfólki mínu á óvart með einhverju gúmmilaði. Eins og staðan er í dag koma pönnukökur og kaka sterklega til greina en ég er ekki alveg búin að ákveða! Skólinn byrjar svo á fimmtudaginn - spurningin er bara á hvaða braut ég hef nám. Ef ég næ prófinu held ég mínu striki annars verð ég í vel völdum fögum í Viðskiptafræði! Þetta er skemmtilegt líf! Hafdís skrifaði klukkan 10:28 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||