|
|||||||||||||||||||
|
8.8.04
Þessi grein birtist líka á frjálsar.com:
Bikarkeppni FRÍ var haldin um helgina eins og flestir lesendur síðunnar vita. Ég lét hana að sjálfsögðu ekki framhjá mér fara og mætti á völlinn báða dagana og hvatti mitt lið áfram. Eðlilega eru tilfinningarnar samt blendnar oft á tíðum þar sem margir góðvinir mínir eru í öðrum liðum og því heldur maður stundum með einstaklingum í öðrum liðum. Sjálf er ég víst umdeild um þessar mundir þar sem ég sendi frá mér yfirlýsingu um að ég vonaði að UMSS myndi sigra í ár og stöðva þar sem sigurgöngu FH sem hefur unnið 11 ár í röð. Þessi athugasemd mín féll í grýttan jarðveg í Hafnarfirði og útundan mér heyrði ég að margir væru ósáttir við mig og skildu ekki hvað ég hefði á móti þeim. Þetta er mikill misskilningur! Ég hélt að FH-ingar gerðu sér grein fyrir sigurþorsta annarra liða og skildu að það verður hálf leiðigjarnt að tapa 11 ár í röð og fá varla að sjá bikarinn góða. FH-ingar hafa átt bikarinn skilið öll þess ár sem ég hef fylgst náið með keppninni. Liðið hefur haft mikla yfirburði og á tímabili þurfti liðið ekki að stilla upp sínu sterkasta liði til að sigra. Í ár var örlítill möguleiki á því að UMSS myndi sigra keppnina og því mikill hugur í mönnum. Sjálf hafði ég meira gaman af keppninni í ár þar sem úrslitin voru ekki ráðin áður en keppnin hófst. FH-ingar þurftu að taka á honum stóra sínum til að landa sigrinum og hálft stig var allt sem skildi liðin að þegar upp var staðið. Það var viðeigandi að helsta kvenhetja FH-inga skildi tryggja sigurinn með svakalegum lokasprett í 400m hlaupi þar sem hún vann sig og sína sveit upp úr 4.sæti sem hefði þýtt tap og upp í 2.sæti sem tryggði liðinu sigur. Ég myndi gjarnan vilja heyra splitt á þessum spretti hennar. Spretturinn minnti mjög á Guðrúnu Arnardóttur hérna í denn þegar hún pikkaði hverja upp á fætur annarri og skilaði Ármenningum sigri. Eftir að hafa heyrt um umdeilanleika minn íhugaði ég þeirra hlið málsins og hugsaði með mér að ég yrði örugglega sár ef ég hefði verið ósigrandi í mörg ár og einhver hefði sagt að hann vildi að ég myndi tapa. Hins vegar myndi ég líka skilja það þar sem allir vilja jú sigra. Sigurviljinn blundar í okkur öllum - það er miklu skemmtilegra að vinna en að tapa. Sjálf er ég mjög tapsár og þoli það varla. Í fyrsta skipti sem ég tapaði í spretthlaupi, 10 ára að aldri, fór ég að hágrenja fyrir framan alla og pabbi dauðskammaðist fyrir mig. Að ári mætti ég enn sterkari til leiks og vann. Síðan þá hef ég áttaði mig á því að stundum mætur maður ofjörlum sínum og að það er ekki alltaf hægt að gera kröfu um sigur og því einbeiti ég mér oft á tíðum að því að minnka bilið milli mín og sigurvegarans eða því að bæta minn persónulega árangur því að það er auðvitað jafn mikill sigur eða meiri. Maður er ekki bara að keppa við hina heldur sjálfan sig og klukkuna um leið! Mér þykir þó heldur skondið að athugasemd frá konu sem hefur ekki þorað að mæta á brautina í 3 ár sökum lélegheita hafi farið svona fyrir brjóstið á annars sjálfsöruggi liði FH-inga og harma það. Ég get hins vegar ekki beðist afsökunar á því að hafa óskað þess að annað nafn færi á bikarinn þar sem það er einlæg ósk mín. Eðlilega vona ég að ég hjálpi til við að koma nafni ÍR á bikarinn aftur eftir langt hlé. Þangað til að það gerist verð ég að vona að hið ósigrandi lið verði sigrað þó svo að það verði ekki nema bara til þess að kveikja sigurneistann í hinum liðunum og að vonin um sigur verði nálægari og valdi því þar með að keppnin harðni. Því með harðandi keppni kemst bikarkeppnin á hærri stall og það gæti leitt til þess að fleiri iðkendur myndu keppa og að hróður frjálsra íþrótta á Íslandi myndi aukast. Ég óska FH-ingum innilega til hamingju með sigurinn, Hafdís skrifaði klukkan 9:28 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||