|
|||||||||||||||||||
|
7.8.04
15 mínútur frægðar!
Það var fyrst í gær sem ég áttaði mig á því að ég er trúlega komin langleiðina með frægðarmínúturnar mínar. Þegar ég var 7 ára var Linda P. boðin velkomin heim í flugstöðinni á Vopnafirði. Mér tókst að standa við hliðina á henni og koma í sjónvarpinu og á mynd í blaði. Reyndar var þetta ekki góður útlitsdagur hjá mér þar sem hárspöngin mín var öll í rugli á hausnum á mér á allt stóð út í loftið og ég var ekki í fötum sem pössuðu saman en þetta var nokkuð sem ég var alls ekki þekkt fyrir og vil halda að ég sé það ekki ennþá! Ég var alla vega svona ófrýnileg í sjónvarpinu í nokkrar mínútur á meðan viðtalinu stóð - ég var þó ekki einn af þessum óþolandi krökkum sem hoppa fyrir aftan myndavélarnar þegar verið er að taka viðtal við einhvern. Ég hallaði mér bara upp að jakkanum hennar Lindu sem var mjúkur og litskrúðugur og sérlega hlýr og svo hlýddi ég bara á orð fegurðardrottningarinnar af áhuga á dáðist að fegurð hennar. Nokkrum árum seinna mætti ég spræk á tónleika með Síðan Skein Sól - þeir voru ekki búnir að breyta yfir í SSSól á þessum tíma. Þar sat ég við hlið vinkonu minnar og við dilluðum okkur og sungum með voða glaðar og sáum svo síðar að þeir notuðu okkur frekar mikið í myndband við lagið Mér finnst rigningin góð að mig minnir. Af þessu er nokkuð ljóst að ég er komin langleiðina með mínúturnar mínar en hyggst nýta þær sem eftir eru betur svo að það verði mér e.t.v til framdráttar. Auk þessa hef ég komið í sjónvarpinu í action á bikarkeppni en ég hef aldrei orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá birta mynd af mér. Það kemur vonandi. Reikna alla vega með að lífskeiðið mitt endi með mynd í blaði -þessari sem verður valin til að setja í dánarfregnir og jarðarfarir! Ég ætla þó að gera mitt besta til að nota frægðarmínúturnar mínar áður! Hafdís skrifaði klukkan 10:35 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||