29.7.04
Við í vinahópnum fórum að ræða um samkeppni á Íslandi um daginn og tókst ekki að finna gott dæmi um samkeppni á neinu sviði. Upp í hugann kom þó samkeppnin á milli Símans og OgVodafone - einhverjir vildu þó meina að um eiginlega samkeppni væri ekki að ræða þar sem annað fyrirtækið keypti þjónustu sína af hinu. Við vorum sammála um að samkeppni ríkti ekki á matvörumarkaði, ekki á olíumarkaði nema á sérstökum svæðum í bænum, einokun ríkir náttúrulega á vínmarkaði og svo mætti lengi telja. Það er oft erfitt að meta hvort um samkeppnismarkað sé að ræða þegar vörur eru ólíkar eins og á bílamarkaði þar sem umboðin bjóða ekki upp á eins bíla - þó eru þeir að mörgu leyti sambærilegir. Það sama má í raun segja um fatnað - hann er sambærilegur en ekki eins.
Einn vinur minn sem hefur verið búsettur vestan hafs í nokkur ár getur ekki hugsað sér að flytja aftur heim út af verðlagi - segist einfaldlega ekki hafa efni á því!
Þetta verðlag okkar er náttúrulega út í hött. Bensínlíterinn kostar rúmar 100 krónur á meðan bandaríkjamenn væla yfir því að hann kosti einhverjar 30-40 krónur.
Hvað er öðruvísi hér og þar? Afhverju er allt svona dýrt hérna heima? Borga aðrar þjóðir hærri skatta? Mér finnst það hæpið þar sem við borum nógu andskoti mikið í skatt - reyndar borga ég voðalega lítið um þessar mundir enda námsmaður en ég kvíði fyrir því að þurfa að fara að borga 40% af laununum mínum í skatt!
 

Hafdís skrifaði klukkan 12:33 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli