4.7.04
Við Sveinbjörn fögnuðum árs búskaparafmæli okkar í gær með því að grilla okkur lambafillét og fá okkur rauðvín.
Ellen vinkona kom í heimsókn ásamt vinkonu sinni og svo létu Andri og Guðný sjá sig! Við skelltum okkur snemma niður í bæ til að koma í veg fyrir að þurfa að bíða í biðröð og hittum Silju, Ylfu, Eyju, Írisi og fleiri vinkonur þeirra uppi. Við skemmtum okkur svakalega vel og dönsuðum mikið og villt. Sumir töpuðu sér reyndar aðeins meira en góðu hófi gegnir en það er bara daglegt brauð! Við vorum samt jafn léleg og vanalega og vorum því komin heim kl.3!
Það var svakalega gaman að djamma með þessu svaðalegu skvísum á ný eftir frekar langt hlé - sér í lagi þar sem ég geri ekki svo mikið af því þessa dagana.

Hafdís skrifaði klukkan 1:26 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli