|
|||||||||||||||||||
|
23.7.04
Það var kátt á hjalla í gær. Ég tók mig til og ákvað að elda heima hjá mömmu þar sem hún var eitthvað slöpp, mætti galvösk um 18 leytið en þá var þrjóskupúkinn móðir mín byrjuð að elda og öll eldamennskan fór fyrir bí þar sem hún tók völdin. Ég fékk sem sagt að ýta aðeins í kjúklingabringurnar á pönnunni, steikja furuhnetur, sækja pott og fat, fara í búð og leggja á borð. Ef öll eldamennska verður svona hjá mér í framtíðinni þá efast ég um að ég verði bitur fyrir þrítugt eins og svo margar húsmæður sem eiga dusilmenni sem eiginmenn. Það er vera dusilmenni merkir í þessu sambandi hjá mér að þeir þykist ekki kunna að elda!
Ég brá þó ekki út af vananum og henti furuhnetunum út um alla eldavél og brenndi mig frekar illa á heitri plötu. Ég vil reyndar kenna systur minni um það þar sem hún var eitthvað að ýta í mig - druslan. Þetta verður alveg yndisleg helgi. Verð í því að drulla mig út niður á Laugardalsvelli. Það kemur alltaf vont veður þegar ég er að keppa og það breytist ekkert núna. Versta veðrið á landsmótinu var akkúrat þegar ég var að keppa og svoleiðis verður það pottþétt um helgina. Reikna með miklum gusum kl.11.00 í fyrramálið og svo kl.15 ef ég kemst áfram og sömuleiðis um kaffileytið á sunnudaginn! Þetta verður sem sagt stuð! Gott að ég er bjartsýn mjög. Ég tapa nefnilega svaðalega á rigningunni þar sem ég dreg svo mikla bleytu í stóru fötin mín! Úff, það verður sjón að sjá 100 kíló hlúnkast út í gryfju ( gerði viljandi Ú í hlúnkast). Horfði á the Punisher með öðru í gær. Var ekki að skilja þetta með að seinasta setningin eyðilegði myndina þar sem þetta var gert eftir teiknimyndasögu - eðlilega eru lame setningar í lokin. Hafdís skrifaði klukkan 1:22 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||