4.7.04
Var að komast að því rétt í þessu að það er forkeppni í þrístökki á fimmtudaginn. Gott að komast að því á sunnudegi og eiga eftir að redda sér fríi til að komast. Auk þess er bílinn okkar bilaður, fór í viðgerð eftir Evrópubikar sem kostaði morðfjár og núna er hann orðinn jafn slæmur og hann var áður en hann var lagaður - frábært. Við eigum nefnilega svo mikið af 50000 köllum!
Þetta eru ekki góðir dagar.
Svo byrjar Metallicu tónleikarnir fyrir allar aldir. Ég er ekki að nenna að mæta kl.17 og vera þarna í einhverja 8 tíma - RUGL! Hugsa að ég fari bara um 7 leytið!

Á víst von á gestum, ætla jafnvel að klæða mig áður en þeir mæta á svæðið - held að það sé betra.

Hafdís skrifaði klukkan 2:28 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli