12.7.04
Skellti mér á landsmót á fimmtudaginn. Fékk að fara fyrr úr vinnunni til að keppa í forkeppni í þrístökki sem átti að hefjast kl.5 á fimmtudag. Ég var ekki mætt á svæðið fyrr en 10 mínútum áður en ég átti að mæta í nafnakall - alltaf jafn tímanleg. Þegar ég var búin að tilkynna mig og hita upp í frekar miklu stressi kom í ljós að við mættum bara 14 og því var forkeppninni aflýst og við komumst allar sjálfkrafa í úrslit. Ég var náttúrulega ekkert svakalega kát með þetta því að ég hefði getað unnið miklu lengur og komið bara um kvöldið eins og ég ætlaði mér upphaflega. Það var þó alveg ágætt að hafa tíma til að dúlla sér við að borða og svona áður en tjaldinu var hent upp. Við fengum svaka flott fjölskyldutjald lánað hjá frænku minni og sent frá Eskifirði með Lísu vinkonu og foreldrum hennar. Ég hefði allt eins getað beðið þau um að taka mig og Sveinbjörn með í skottið þar sem tjaldið var HUGE. Við Sveinbjörn komum queen size dýnunni okkar vel fyrir eftir að hafa sett met í að tjalda tjaldinu - aðeins 40 mínútur. Sigurjón tók reglulega myndir til að hafa sönnunargögn og var á því að þessar 40 mínútur hefðu verið soldið lengur að líða en venjulegar 40 mínútur þrátt fyrir að raunverulega fake nike úrið mitt hafi sagt að hann hafi verið 30 mínútur með sitt og við 40 með okkar. Þess ber að geta að okkar var mun stærra og umfangsmeira. Til að mynda þurfti að púsla saman grindinni hjá okkur sem við höfðum ALDREI séð áður og aldrei tjaldað áður en Sigurjón hafði tjaldað sínu áður. Sveinbjörn var reyndar búinn að afla sér smá reynslu með því að hjálpa Ernu Dögg að tjalda.
Við vöknuðum snemma á föstudaginn enda steikjandi sól og gott veður og því var dýnan bara dregin út og fötunum fækkað. Við lágum í sólbaði fram eftir degi og fórum svo að horfa á mótið sem hófst kl.2 á föstudaginn. Það var soldið kaldara á vellinum en uppi á tjaldstæði þar sem völlurinn er í skugga af stórum hól.
Það er ótrúlega þreytandi að sitja upp í stúku og hvetja liðið og labba fram og tilbaka upp á tjaldstæði svo að það var ekki vakað langt fram á nótt. Þreytt fólk fór snemma í háttinn þrátt fyrir læti og vil ég þakka hávaðaseggjunum nágrönnum okkar fyrir að hafa þjálfað okkur upp í að sofa í hávaða. Yndislegt alveg hreint. Greyið tengdamamma var á aðal partýsvæðinu og svaf lítið sem ekkert vegna hávaða og píkuskrækja í einhverjum ólátabelgjum. Þessir fylliraftar.
Mér gekk ekkert sérstaklega vel að keppa - var búin að setja mér háleit markmið sem náðust ekki. Það eina sem ég afrekaði var að rispa fótinn á mér illa og gera lengsta stökkið mitt ógilt - reyndar fékk ég nokkur stig og var vel fyrir ofan miðju en það var líka markmið út af fyrir sig. Ég tapaði keppninni við Jóhönnu - hún vann mig með meira en metra. Það var þreytt fólk sem lagði af stað heim seini partinn í gær og ég gerði mér lítið fyrir og var nær því en nokkru sinni áður að sofna í bíl en það hefur aldrei gerst á minni lífstíð!
Samantektin af landsmótinu var svo sem ágætt en mér fannst heldur leiðinlegt að þrístökk kvenna og kringla kvenna hefðu gleymst en allar aðrar greinar fengið athygli. Bjössi Arngríms fékk svakalega athygli örþreyttur eftir sigur í 1500 og var jafn sætur og sonur hans þegar hann lofsöng unnustu sína - mjög vel orðað hjá honum og fallega sagt.
Ég var ofsalega þreytt þegar ég lagðist upp í rúm í gær og fann til alls staðar. Í dag er ég ennþá ofsalega þreytt og finn ennþá ofsalega til!
Sveinbjörn tók myndir af landsmótinu - við hendum þeim inn fljótlega!

Hafdís skrifaði klukkan 9:16 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli