1.7.04
Oh, ég er ennþá lasin.
Er virkilega óglatt og svakalega illt í hausnum. Veit ekki hvað er með mig. Það versta er að Sveinbjörn er svona líka og eiginlega verri. Ég er samt aðeins að skána í húðinni en ég fékk líka milljón lyf hjá lækninum í gær. Ég er með leiðinda sýkingu og þurfti að fá lyf sem ég er ekki svo mikið hrifin af því að taka.Er þó öllu skárri í dag fyrir utan ofangreint.
Finnst bara svo ógeðslega leiðinlegt að vera veik.
Ætlaði svo að fara í vinnuna í dag, vaknaði og gerði mig klára en dó svo úr ógleði og fékk Cheeriosið upp aftur! Ekki gott að æla því! Hef sem betur fer ekki ælt meira en er að deyja úr ógleði!
Fer í vinnuna á morgun hvað sem maginn minn tautar og raular. Sveinbjörn er samt verri en ég svo að ég hef verið soldið í því að stjana við hann og rétta honum fötuna. Hann sat áðan á klósettinum með fötuna fyrir framan sig - æði!
Sex and the city hafa alveg verið að bjarga mér! Er búin að horfa á endalaust marga þætti - þeir eru æðislegir!

Ég ætla að halda áfram að gráta yfir veðrinu! Það er alltaf svo gott veður þegar mér líður illa! Óþolandi...

Hafdís skrifaði klukkan 3:33 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli