5.7.04
Metallica

Ég skellti mér á tónleikana miklu í gær með Sveinbirni, Ellen, Rakel og Himma. Við mættum ekki fyrr en að ganga 9 þar sem við Ellen vissum ekki af handtöskubanni og tókum ekki vel í að geyma nýju fínu töskurnar okkar í einhverjum gámi og fá númer. Ég var heldur ekki hrifin af því að þurfa að eyða einhverjum klukkutímum í röð eftir handtösku! Þar sem við ákváðum að vera skynsöm og leggja bílnum hjá Vesturlandsvegi voru þessir 2km í bílinn ekki álitlegir svona rétt fyrir upphaf tónleikanna. Ég brá því á það ráð að hringja í Guðnýju vinkonu og plata hana til að sækja okkur og skutla okkur í bílinn. Við færðum bílinn svo bara nær Höllinni svo að við þyrftum ekki að labba aftur eða að Guðný þyrfti að keyra okkur upp að Höll.
Þegar við svo loksins komumst inn í Höll töskulausar blasti þvílík mannþröng við og loftið var ekki upp á marga fiska. Við vorum þó frekar spennt og settum þetta ekkert fyrir okkur. Eftir að hafa staðið inni í tæplega klukkutíma án þess að nokkuð gerðist annað en að fólk klappaði bandið upp byrjuðu þeir að spila - korteri á eftir áætlun. Ég þekkti ekki mörg lög í fyrstu og áætlaði að þetta væri eldri lög, þekkti svo aðeins af nýju plötunni en uppáhaldslögin mín komu ekki fyrr en í lokin. Það var þó ljúft að heyra þessi frábæri lög flutt life þó svo að sviti, hiti og þorsti settu strik í reikninginn. Metallicu menn hittu svo sannarlega naglann á höfuðið þegar þeir glöddust yfir komunni til Íslands og nefndu að hitinn minnti þó frekar á Flórída en á ís og kulda. Ég geri ráð fyrir að hitastigið inn í Egilshöll hafi verið um 40° og rakinn svona 90%. Ég horfði líka illilega á þá sem voru að reykja við þessar aðstæður og eyða þar sem þessu litla súrefni sem inni var og menga fyrir hinum. Mér finnst að þegar stendur á miðanum að áfengi og vímuefni séu ekki leyfð að það eigi að gilda fyrir sígarettur líka - hvað eru þær annað en vímuefni? Alla vega góð leið til að drepa 18000 aðra!
Þessi tónleikar voru í heild alveg snilld þó svo að ég gæti ekki sungið með nema svona 5 lögum - ég þóttist bara kunna textana við sum hinna og naut bara laglínunnar í þeim sem ég þekkti ekki neitt. Einnig var sérlega gaman að fylgjast með fólkinu sem var jafn misjafnt og það var margt. Helst ber að nefna að Vignir í Írafár og Sölvi í Quarashi voru á svæðinu okkar og voru kátir og svo er einn voða sætur á bilinu 4-5 ára sem sat á herðunum á föður sínum allt kvöldið með vinnuhlýfar og starði á sviðið og klappaði voða kátur. Einnig ber að nefna einn töffarann sem var ber að ofan og slammaði allan tímann - get ímyndað mér að hann sé með hálsríg í dag. Hljómsveitin spilaði í tæplega 2 og hálfan tíma og eiga þeir mikið hrós skilið fyrir það þar sem aðstæður voru með erfiðasta móti og fataskipti hjá þeim hafa væntanlega sjaldan verið jafn tíð. Ég sá ekki mikið á sviðið, bara aðeins framhjá háu kollunum 17000 sem voru fyrir framan mig. Ég tók sem sagt skynsemis pakkann á þetta eins og allt annað og stóð ofarlega nálægt hurðunum! Þess vegna naut ég þess meira að horfa á vitleysingana fyrir framan mig.
Ég hitti fullt af góðu fólki sem átti það sameiginlegt að vera vel sveitt en samt með mikinn þokka! Alltaf gaman að hitta sjaldséða.

Stemningin var alla vega gríðarleg þrátt fyrir andnauð og hita. Ég var reyndar alveg búin á því í lokin og dreif mig bara heim - það tók bara rúmlega klukkutíma og skellti mér í sturtu og beint í bólið. Get ekki líst því hvað það var vont að drekka vatn eftir þennan vatnsskort - jesús. Ég er ekki búin að pissa mikið í dag þrátt fyrir að hafa verið dugleg að drekka - var greinilega orðin illa þjáð!

Frábærir tónleikar alveg hreint!

Hafdís skrifaði klukkan 4:41 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli