20.7.04
Það markverðasta sem á daga mína hefur drifið í dag er að vinkona mín hérna í vinnunni var að tilkynna óléttu sína. Ég er búin að vera ofur spennt hérna í allan dag. Hún situr nefnilega við hliðina á mér svo að ég tek virkan þátt í spennunni. Það sem gerir þetta enn sérstakara er að hún er búin að vera eitthvað gölluð og hafði því ekkert kippt sér upp við að vera blæðingalaus og skrýtinn og komst sem sagt að því í gær að hún væri gengin tæpa 5 mánuði - pælið í því. Hún hefur því extra lítinn tíma til að plana allt og er búin að vera uppveðruð í dag. Ég er að hugsa um að hafa þetta bara svona líka - komast seint að því að ég sé ólétt svo að ég geti haldið kjafti yfir því í einhvern tíma ;) Held samt að það verði skemmtilegast í geimi að segja mömmu frá þessu þar sem hún er búin að vera að bíða í nokkur ár! Reikna með að segja henni þetta mjög fljótlega!
 
Það næst markverðasta er að ég borðaði bara grænmeti í hádeginu í dag, langaði ekki í fiskinn og fékk mér því bara smá grænmeti með fetaostinum mínum!
 
Þriðja sætið hreppir svo hinn óvænti glaðningurinn - lakkrísinn sem ein hérna færði okkur fyrir hádegi. Er alveg búin að vera að reyna að missa mig ekki í hann án mikils árangurs. Ég er algjör sökker á lakkrís. Það sem er þó verra er að ég kemst ekki á æfingu í kvöld þar sem ég er að fara að vinna í símsöluveri bankans í kvöld ;) Vúhú...
 
Skýrslan er tilbúin hérna við hlið mér, Guðrún Inga vinkona mín eða Ginga eins og ég kýs að kalla hana var svo góð að lesa hana yfir og gaf mér þarfar leiðréttingar. Kann ég henni bestu þakkir fyrir!
 
Annað var það ekki í bili,
Lifi lærdómurinn!

Hafdís skrifaði klukkan 3:10 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli