26.7.04
Ljótri helgi lokið.

Ég þóttist vera að keppa um helgina en í rauninni var ég bara að klúðra mínum málum. Held að það sé ekki hægt að flokka nærveru mína á vellinum í íþróttafötunum sem keppni. Gerði öll stökkin mín ógild í langstökki - fékk meira að segja auka stökk þar sem dómarinn ógilti eitt stökkið mitt og rýndi svo niður í leirinn og sá ekki glóru og sagði þá að stökkið væri gilt. Það var hins vegar of seint þar sem aðstoðarmennirnir voru búnir að raka yfir leirinn. Ég gerði sem sagt 4 stökk ógild og komst þar af leiðandi ekki áfram. Ég var nú hálf fegin seinni partinn þegar keppnin fór fram þar sem það var kalt og keppnin tók klukkutíma og 45 mínútur í heildina. Í staðinn spriklaði ég bara niður á velli og var aðstoðarljósmyndari. Vil halda að ég hafi komið að góðum notum. Ég stóð mig þó vel í einhverju þann daginn þar sem ég grillaði hamborgara listilega vel heima í Skipasundi á meðan Sveinbjörn svaf. Eðlilega var hann þreyttur greyið, það er erfitt að sitja upp í stúku í sólinni og taka myndir af þeim sem eru að hreyfa sig. Þetta voru með bestu hamborgurum sem ég hef smakka og létt Bónu hamborgarasósa var að gera góða hluti. Fann mig mjókka eftir að hafa hámað í mig 2 stk.

Ég gerði ekkert betri hluti á sunnudeginum. Byrjaði að hita upp fyrir allar aldir og var orðin þreytt hálftíma áður en ég átti að byrja að keppa, vil soldið kenna Jóhönnu um þar sem hún byrjaði að hita upp snemma og ég vildi hita upp með henni en í raun get ég bara kennt aldrinum og æfingaleysinu um. Ég gjörsamlega skeit á mig í keppninni, var ekki að gera góða hluti. Var sársvekkt þegar ég áttaði mig á því að ég komst í úrslit þar sem ég var þreytt og langaði bara að fara upp í stúku. Allar aðrar voru að gera góða hluti, bættu sig alveg í röðum.
Við Sveinbjörn ákváðum svo að fara að horfa á Víkingur-KR í Víkinni þar sem Sveinbjörn er harður Víkingur og slepptum því að fara út að borða með ÍR-liðinu á Grillhúsinu. Við fitnuðum alla vega ekki á meðan þar sem við borðuðum banana á vellinum í staðinn fyrir óhollustuna á Grillhúsinu - gott hjá okkur.

Ég vaknaði síðan KÁT kl.4 í nótt við símann minn. Hljóp fram og sá að Silja var að hringja. Hún var bara hissa á því að ég væri sofandi og skildi ekkert í þessu. Hún var bara kát ásamt einhverjum 4 öðrum og bað bara að heilsa. Ég var alveg hálftíma að ná hjartslættinum niður og sofna aftur. Alltaf gleðilegt að vakna svona óvænt. Það var því þreytt, stíf og skæld kona sem drösslaðist fram úr í morgun og augnlokin hafa verið heldur þreytt svona framan af morgni!

Hafdís skrifaði klukkan 10:19 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli