|
|||||||||||||||||||
|
28.7.04
Hollystuprógramm dauðans er í gangi um þessar mundir. Stefnan er að hjóla í og úr vinnunni á hverjum degi og fara auk þess á æfingar. Ég kom við heima hjá foreldrum mínum á leiðinni niður í Laugardal í gær til að mæta ekki langfyrst á staðinn. Sveinbjörn var nefnilega að vinna aðeins lengur og stelpurnar hafa ekki lagt í vana sinn að mæta kl.5 - sér í lagi ekki þar sem nokkrar eru að vinna til sex og því væri ekki svo gott að mæta kl.5!
Ég brunaði svo niður í dal um hálf sex og skokkaði með Sveinbirni - komst þó ekki langt þar sem fótleggirnir mótmæltu harðlega. Þess í stað fórum við í Frisby með Einari Karli en hann á einhvern voða flottan frisby-disk sem á að geta gert alls kyns kúnstir. Eftir smá prakkaraskap og læti tók ég þó smá æfingu en það sem átti að vera hratt var ekki hratt - ekki einu sinni á minn mælikvarða þar sem lappirnar vildu barasta ekki hlýða og fóru því bara hægt! Ég tók bara fleiri endurtekningar fyrir vikið, teygði svo á og hjólaði heim. Þar beið mín hollystumáltíð og svo fór ég bara snemma í bólið þar sem líkaminn var örþreyttur vonandi eftir að hafa brennt svona OFUR miklu. Þegar ég settist á hnakkinn á hjólinu í morgun langaði mig mest að öskra þar sem rassabeinin fengu að kenna á því í gær og voru því marin og aum! Það þarf greinilega að venjast þessum hnökkum. Hjólið er annars ekki að gera góða hluti þar sem það tekur reglulega upp á því að skipta bara um gír - þetta kemur sérlega oft fyrir á óheppilegum stöðum svo sem í brekku þar sem hjólarinn getur kannski ekki skipt svo auðveldlega um gír strax. Þetta olli mér smá vandræðum á leið upp Ártúnsbrekkuna í dag þar sem ég var í frekar erfiðum gír en piltur á undan mér var bara svona á góðu rúlli - reyndar endaði þetta með því að ég náði honum en missti hann fljótt frá mér aftur þar sem hann var ekki næstum eins þreyttur eftir uppleiðina. Ég gladdist hins vegar mjög á ferð minn frá Eggertsgötu, framhjá Nauthólsvík, í gegnum Fossvoginn og þar beint upp í Árbæ upp hitaveitustokkinn - tók ég fram úr 2 hjólurum! Alltaf gaman að taka fram úr. Sérstaklega þar sem ég var endalaust þreytt eftir fyrsta kílómeterinn. Þetta verður vonandi auðveldara með hverjum deginum sem líður... Hafdís skrifaði klukkan 1:30 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||