|
|||||||||||||||||||
|
21.7.04
Henti þessari grein inn á frjálsar.com rétt í þessu. Ákvað að setja hana líka hérna þar sem ég skrifaði hana fyrst hér...njótið!
Í framhaldi af umræðum mínum við fyrrum liðsfélaga minn um bætingar og annað sem tengist íþróttum fór ég að velta fyrir mér hvort að við Íslendingar gerðum óraunhæfar kröfur til okkar. Hvort að kröfurnar sem við setjum séu meiri en annarra íþróttamanna. Hér á landi tíðkast að fólk bæti sig alltaf á hverju ári, ef það gerist ekki tekur fólk enn betur á því og gerir oft á tíðum kröfur um að bæta sig tvöfalt meira á næsta ári. Ef engar mælanlegar breytingar mælast gefst fólk oft upp og hættir. Þar af leiðandi eru ekki margir sem iðka íþróttina sér til ánægju og yndisauka. Krafan um að keppa er mikil þar sem íþróttin er ekki fjölmenn. Þeir sem ekki hafa lagt mikið á sig æfingalega en njóta félagsskaparins og þess að hreyfa sig hafa ekki alltaf áhuga á því að etja kappi. Bæði sökum þess að formið er ekki eins og það var þegar viðkomandi var upp á sitt besta og einnig þar sem íþróttin er jafnvel ekki stunduð með keppni í huga. Sjálf er ég búin að vera að hlaupa mér til ánægju undanfarin tvö ár en samt sem áður er ég alltaf spurð að því hvort að ég ætli ekki að keppa eða hvenær ég ætli nú að keppa! Sjálf er ég þannig að ég er með mikið keppnisskap og eitt af því leiðinlegasta sem ég geri er að tapa, þar af leiðandi hef ég reynt að hlýfa sjálfri mér og keppa ekki mikið til að deyja nú ekki úr svekkelsi yfir eigin frammistöðu! Ég var að ræða við ungan mann um daginn sem var svekktur með sig og sína frammistöðu þar sem hann hafði ekkert bætt sig þrátt fyrir að hlaupa vel á vormótum sumarsins og lofa þar með góðu um framhaldið. Hann var að tapa fyrir sér yngri mönnum, jafnvel einhverjum sem hann hafði aldrei tapað fyrir áður. Fannst hann vera hægur og var leiður yfir þessu öllu saman. Eins og aðrir vildi hann bæta sig - auðvitað. Það er eðlilegt að vilja alltaf gera betur en er alltaf hægt að gera betur? Getum við gert þá kröfu til okkar að gera alltaf betur en í gær? Auðvitað segja sumir, annars bætir maður sig ekkert. Aðrir segja að það sé hægt fram á visst aldursskeið. Hvernig er með þá sem keppa í öldungaflokki - geta þeir bætt sig? Ég hef líka lengi velt því fyrir mér afhverju frjálsíþróttaflokkarnir séu ekki eins og flokkar fatlaðra. Afhverju er ekki keppt í flokki dökkhærðra kvenna sem eru yfir 170 á hæð og aðeins og þungar? Það væri líka hægt að skipta fólki í flokka eftir því hvort að hæfileikarnir séu meðfæddir eða áskapaðir. Það er ljóst að sumir þurfa að hafa miklu meira fyrir því að halda sér í fremsta flokki en aðrir. Sumir virðast geta verið meiddir allt árið og vinna samt sem áður alla eftir að hafa eitt árinu í að hlaupa í sundi, lyfta og taka þrekæfingar! Er sigurviljinn og bætingagleðin meiri hjá þessu fólki en hinum eða eru þetta bara hæfileikarnir sem njóta sín hvort sem hlaupið er á braut eða í vatni! Reyndar er augljóst að þeir sem þrauka þátt fyrir ítrekuð meiðsli og koma til baka og sýna það sem í þeim býr eru sannir íþróttamenn sem hætta ekki þó á móti blási. Mér finnst nefnilega vera sigur að sigrast á mótlætinu og koma tvíefldur tilbaka. Það er gaman að sjá íþróttamenn sem hafa verið í einhvers konar lægð ef svo skyldi kalla koma tilbaka og gera allt brjálað með því að bæta sig hrikalega! Hver veit nema ég rífi mig loks upp af rassgatinu og æfi það af mér og komi tilbaka að ári í betra formi en nokkru sinni og skipti loks kútnum út fyrir kippu eða sixpack eins og það kallast á útlensku. Það verður tíminn að leiða í ljós en þangað til finnst mér voða gaman að leika mér á brautinni og njóta þess að hreyfa mig undir berum himni frekar en innilokuð í líkamsræktarstöð. Njótum þess að vera með. Íþróttir fyrir alla, Hafdís skrifaði klukkan 3:01 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||