19.7.04
Helgin:
 
Föstudagur.
Skellti mér á æfingu í sólinni og náði að hlaupa nógu marga spretti til að vera með krampa í kálfunum og ilini það sem eftir lifði kvölds og stífleika fram á næsta dag. Eftir æfingu var haldið heim á leið til að klára að gera íbúðina partývæna þar sem Sveinbjörn bauð einhverjum verkfræðidruslum frá Línuhönnun í heimsókn. Ég eyddi kvöldinu með Ellen vinkonu minni. Við fórum út að borða og tókum okkur tvær stelpumyndir og höfðum það bara gott upp í sófa með lakkrískúlur og sódavatn. Þegar ég kom heim um hálf tvö var Sveinbjörn á fullu að taka til og var búinn að vera lengi að en íbúðin var samt í rúst. Einhver mætti með nokkra útilegustóla með sér, ein mætti með tölvuna sína með sér og fullt af fólki mætti með bjór sem það skildi svo eftir út um alla íbúð. Í öllum hillum og á gólfinu og á öllum borðum og bekkjum og sumir voru meira að segja svo vænir að hella smá hluta úr dósum og flöskum á hólf og gólf. Sá sem var þó yndislegastur var eitthvað fífl sem braut klósettið okkar. Hann bætti þó fyrir það með því að laga það mesta en takkinn sem maður sturtar niður með er brotinn og því oft erfitt að sturta niður. Vá, hvað ég á eftir að hafa gaman af því að senda honum reikninginn! Þetta kennir sumum að bjóða ekki hálf ókunnugu fólki í partý til sín...þeim er alveg sama um eigur manns.
 
Laugardagur.
Flúði drasl íbúðarinnar með því að fara til mömmu. Lágum þar á teppi í mestu makindum allan daginn - ég lærði hugtökin mín og Sveinbjörn las einhverjar heilsufréttir og svaf á milli blaðsíðna.
Við fórum svo í grillveislu til
Alberts um kvöldið þar sem mikið var sprellað. Við nutum þess að borða úti á palli og dáðumst að veðrinu um leið. Eftir kvöldmat hentum við okkur inn í sófa og fljótlega var Albert búinn að draga karókígræjurnar fram og mikil keppni upphófst. Stelpurnar voru þó frekar lélegar að þessu sinni nema undirrituð sem ætlaði að taka Like a virgin ógleymanlega en klikkað eitthvað á textanum á sumum stöðum og klúðraði sínum málum þar með. Þess vegna var lítið mál fyrir Sigurjón sem hingað til hefur bara verið þekktur sem frjálsíþróttastjarna, ljósmyndari, grínisti og skaphundur að rúlla keppninni upp með nýstárlegum flutningi á slagaranum NEW YORK, NEW YORK sem Frank Sinatra reyndi einu sinni að syngja. Burkni Helgason sýndi reyndar líka frábæra takta og átti bæði besta og versta flutninginn. Hann byrjaði sem sagt ekki vel með She bangs en lokaði með frábærum flutningi á Come Undone! Eftir æsispennandi kosningu sigraði Sigurjón núna söngvari og Burkni varð annar. Þess ber þó að geta að atvinnumaðurinn Albert Þór Magnússon tók að sér hlutverk kynnis og tók ekki þátt í keppninni. Hann skemmti þó í hléi við góðar undirtektir. Þessi keppni var þó frábrugðin öðrum söngkeppnum að því leytinu til að áhorfendur tóku sig til og sungu hástöfum með flytjandi í öllum lögunum og hjálpuðu oft til við að koma afvegaleidddum á sporið.
Eftir mikið grín, glens og gaman var haldið á Hverfiz þar sem dansinn dunaði langt fram á nótt.
Ég var komin heim um 4 leytið, gjörsamlega búin á því. Eftir að hafa gert ítrekaðar tilraunir til að berja Sveinbjörn nógu fast svo að hann hryti ekki svona mikið flúði ég fram í stofu með viðeigandi látum, sem vöktu hann því miður ekki, og svaf þar fram á morgun - ef svefn skildi kalla.
Sunnudagur:
Sveinbjörn var svo hættur að hrjóta þegar ég drösslaðist aftur inn í rúm um 10 leytið um morguninn og hafði ekki tekið eftir brotthvarfi mínu. DRUSLAN. Við vöknuðum við óbærilegan hita tveimur tímum seinna og fljótlega ákvað ég að flýja heimili mitt enn á ný og fór aftur heim til mömmu og eyddi deginum í sólstól með hugtökin góðu í fanginu og mal Ellenar, mömmu og ömmu í eyrunum. Eftir daginn var ég svona skemmtilega rauð á bringunni þar sem sólarvörnin var kyrfilega geymd hjá Sveinbirni innipúka og hrotubrjót sem eyddi deginum í tölvuleikjum og dvd-glápi! Um að gera að eyða sólardögunum inni - þeir eru svo margir.
Ég tók síðan smá kast á hugtökunum mínum í gærkvöldi og grýtti þeim eitthvað út í horn og ákvað að þetta væri ekki þess virði og ákvað að hætta í skólanum. Þetta er svo asnalegt! Ég get endalaust ruglast á þessu enda er þetta allt svo líkt! Ég kenni þreytunni um þessi leiðindi mín þar sem ég náði ekki að sofa mikið um nóttina og var búin að vera úti allan daginn. Ég er í þessum skrifuðu orðum á leiðinni í prófið og ætla að tækla það með því að ná þessum 15 orðum á 3 mínútum. Er einmitt að stelast til að æfa mig í vinnunni...
Ef ég næ þessu prófi ekki ætla ég bara að fá mér vinnu á McDonalds!
 
Góðar stundir,


Hafdís skrifaði klukkan 9:35 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli