14.7.04
Ég var að skella inn myndum frá Landsmótinu sem við skötuhjúin tókum. Þið sjáið það hérna til vinstri. Frekar leiðinlegt að setja inn myndir þessa dagana þar sem maður er orðinn svo góðu vanur af því að fylgjast með atvinnumönnunum Árna og Sigurjóni.
Getið samt kíkt á þær.
Ef þið hafið áhuga á því að sjá mig í action getið þið líka litið á myndirnar hans Sjóns á Frjálsar.com.

Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að skoða frjálsíþróttamyndir. Hafði líka lúmskt gaman af því að sjá að andlitið á mér er alveg jafn afskræmt og allra hinna þegar ég er að keppa. Ég var í laumi að vona að ég væri voða sæt þegar ég væri að keppa en...
Ef þið viljið kíkja á þetta er myndin af mér framarlega í myndum frá sunnudeginum!

Hafdís skrifaði klukkan 8:26 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli