|
|||||||||||||||||||
|
30.7.04
Ég var að passa litla 4 ára frænda minn í gær, Maríus Pétur. Hann var bara nokkuð sprækur, hljóp út um allt niður á Laugardalsvelli bæði úti og inni. Tók löng tilhlaup og hoppaði upp á dýnurnar, lyfti öllu sem hann sá og hoppaði út í langstökksgryfju með tilþrifum.Langstökkstílinn var mjög svo frjálslegur á 40m atrennu tók hann 2-3 valhopp og þar af eitt áður en hann stökk út í gryfju og svo hjóp hann eiginlega bara beint út í gryfju og skutlaði sér. Þetta var allt mjög skondið. Sama hvað ég reyndi að segja honum að það væri nóg fyrir hann að taka stutta atrennu þá hlustaði hann ekki mikið á það þvaður og færði sig bara aftar fyrir vikið. Ég get reyndar ekki kvartað mikið yfir því þar sem ég hefði pottþétt gert það sama sjálf á þessum aldri! Við keyptum svo pizzu til að gleðja guttann en þegar heim var komið var hann svakalega svekktur yfir því að það væru engar svartar ólífur á pizzunni og fannst frekar furðulegt að við ættum ekki ólífur og enn furðulegra að okkur fyndist þær ekki góðar. Hann gat engan veginn farið í sturtu - bara bað. Fannst lélegt að ég ætti ekki bað og mælti með því að ég myndi kaupa mér það sem fyrst. Hann vildi líka að við Sveinbjörn myndum kaupa okkur dót svo að hann gæti leikið sér - skildi ekkert í því að við gætum ekki bara farið í bankann og fengið pening! Þessi elska veit hvort er hægri og hvort er vinstri, hann veit hvar spítalinn er og í hvaða bæjarhluta við erum. Áttar sig á því að afi Binni eigi heima hérna nálægt og er með allt á hreinu varðandi flugvöllinn og biður okkur um að fara þangað á svona 5 mínútna fresti. Hann vildi helst horfa á Spiderman - áttaði sig ekki alveg á því að hún væri kannski ekki alveg fyrir svona ung börn - hann er jú einu sinni stór strákur! Við leyfðum honum að horfa á smá hluta af myndinni. Hann sá Spidermanbúninginn og græna djöfulinn og það gladdi mjög lítið hjarta sem dáir Spiderman. Hann var heldur ekkert á því að fara að sofa - skildi ekki hvar hann gæti sofið heima hjá mér. Fannst mitt rúm ekki alveg koma til greina og því hélt hann sér bara vakandi til 11 hinn sprækasti. Ég get reyndar sjálfri mér um kennt - ég asnaðist til að gefa honum Coke með pizzunni. Þessi elska er líka alltaf svöng og var í því að borða afgang af pizzu langt fram eftir kvöldi og langaði í eitthvað lítið þess á milli - bara eitthvað lítið! Hann er voða yndislegur en minnir mig samt á hvað ég er ekki tilbúin í að eignast börn strax sem er jú voða gott. Mér finnst bara voða gott að fá þessar elskur lánaðar í smá stund og skila þeim svo af mér og njóta þess að þurfa bara að hugsa um Sveinbjörn - það er alveg nóg fyrir mig í bili! Hafdís skrifaði klukkan 10:42 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||