|
|||||||||||||||||||
|
14.7.04
Ég skil ekki SNOOZE!
Sumt fólk lætur vekjaraklukkuna hringja hálftíma áður en það ætlar á fætur og ýtir svo á snooze á 10 mínútna fresti þangað til hálftíminn er liðinn. Þessu fólki finnst voða notalegt að geta hvílt sig soldið lengur eftir að klukkan hringir og veit að það þarf ekki að fara alveg strax á fætur. Aðrir stilla klukkuna á réttan tíma en ýta samt sem áður á snooze nokkrum sinnum þar sem það er of þreytt til að fara á fætur. Nágrannar mínir ýta á snooze frá því kl.6:30 á morgnana og fram til 8 oft á tíðum. Þau eiga reyndar við geðræn vandamál að stríða svo að það er ekkert að marka. Ég stilli klukkuna á 7:30 og þá fer ég á fætur. Ég kúri reyndar stundum uppi í rúmi í svona 10 mínútur en ekki mikið lengur en það og þá finnst mér ekkert betra að snooza, ég er hvort eð er vöknuð. Það er reyndar smá öryggi í því að slökkva ekki strax á klukkunni ef ske kynni að maður myndi sofna aftur en afhverju að stilla klukkuna viljandi fram í tímann og ýta viljandi nokkrum sinnum á snooze? Ef það er fólk sem á erfitt með að vakna á morgnana er þá ekki ráðið að leyfa sér að sofa í einum rykk hálftíma lengur heldur en að sofa í 10 mínútur í sennn? Mér finnst alla vega betra að fara bara strax á fætur og hafa mig til heldur en að hvílast í nokkrar mínútur í senn! Hafdís skrifaði klukkan 8:51 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||