16.7.04
Ég skellti mér á The Bagel House í hádeginu með nokkrum vel völdum vinnufélögum. Við lögðum af stað aðeins fyrir hádegi og vorum frekar snögg á leiðinni. Komin þangað rétt um 12. Það er skemmst frá því að segja að afgreiðslan tók 25 mínútur. Hjá þeim er þannig kerfi að hver og einn afgreiðir þig frá því að þú pantar og þar til að þú borgar - annað en á Subway þar sem færibandavinnan er að gera góða hluti! Maturinn var heldur ekkert spes, fannst eins og það vantaði eitthvað og því fær staðurinn og þjónustan ekki háa einkunn hjá mér. Svo er þetta líka soldið dýrt miðað við það sem maður fær!
Ég var sem sagt ekki hrifin og félagar mínir voru sammála mér!

Annars er ég bara að ergja mig á að vera að vinna inni í svona góðu veðri. Get þó huggað mig við að það eru bara 2 og hálfur tími í að ég komist út!

Í kvöld er stefnan tekin á gott afslöppunarkvöld með Ellen vinkonu minni. Held að spóla og nammi komi sterklega til greina og svo er ÍR-djamm á morgun. Nokkuð spennt fyrir því. Held að það verði BRJÁLAÐ STÖÐ...

Hafdís skrifaði klukkan 1:41 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli