27.7.04
Ég hjólaði í vinnuna í morgun - ca.11 km! Viðurkenni fúslega að hitaveitustokkurinn upp í Árbæ var heldur strembinn. Ég var andstutt, þurfti að vanda mig við að anda inn, rassinn og lærin fundu vel fyrir átakinu við að hjóla upp sitjandi og því fékk ég smá svona sýrutilfinningu og þorstinn drap mig næstum en þetta var þess virði! Frá því að ég flutti hingað á mölina stend nefnilega ég ekki þegar hjóla!
Daníel bróðir hans Sveinbjörns lánaði mér hjólið sitt þar sem ég á ekkert hjól. Eini gallinn við það er að það er helst til of lítið. Ég myndi vilja hafa sætið soldið hærra svo að ég sitji ekki svona ofsalega mikið þegar ég hjóla. Sætið er í hæstu stillingu en samt næ ég niður - ég vil þurfa að teygja aðeins úr fætinum niður á pedalann og fá þar með eðlilegri hreyfingu.
Þetta var hressandi mjög!

Ég hlakka soldið mikið til að hjóla á æfingu þar sem þetta er að mestu leyti niður í móti  - mér finnst gaman að fara hratt ;)




Hafdís skrifaði klukkan 9:10 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli