21.7.04
Ég gleymdi alveg að minnast á að ég keypti mér Harry Potter skó um daginn. Er frekar lukkuleg yfir því að eiga svona fína skó. Þeir eru reyndar bláir en það er bara í stíl við ÍR-litinn. Held að það renni blátt blóð í mínum æðum en það tengist þó bara íþróttum - ekki stjórnmálum. Þá er ég bara með allt annað en blátt! Þegar ég segi Harry Potter skór þá meina ég að þeir heita það sama og kústurinn hans Harrys - NIMBUS, reyndar ekki Nimbus 2000 heldur meira svona Nimbus 2004 þar sem þeir eru framleiddir í ár! Held sem sagt að skórnir mínir séu betri en Nimbusinn hans Harrys! Spurning hvort þeir gefi mér ekki bara meiri hraða og styrk og geri mér kleift að fljúga hærra!

Mér finnst það mjög líklegt!

Hafdís skrifaði klukkan 9:44 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli