29.7.04
Ég er aumingi.
Hjólið er brettalaust og ég varð rennandi blaut og drullug upp fyrir haus af því að hjóla heim frá Laugardalsvelli í gær og því tók ég þá ákvörðun að hjóla ekki í vinnuna í dag. Ég einfaldlega nennti ekki að fara að byrja á því að fara í sturtu um leið og ég kæmi í vinnuna! Ég er löt ég veit.
Auk þess hafa þessir hjólatúrar verið að eyðileggja frjálsíþróttaæfingarnar fyrir mér þar sem ég er frekar þreytt í fótunum af öllu þessu hjóli. Það ætti því ekkert að vera því til fyrirstöðu að ég taki svaka æfingu niður í dal á eftir! Ég er eiginlega bara strax farin að hlakka til. Reyndar er ég þjálfaralaus þar sem minn skrapp til Bandaríkjanna í viku en ég hlýt að geta fundið eitthvað skemmtilegt handa mér að gera!
Ég hef samt ákveðið að hjóla í vinnuna á morgun hvernig sem veðrið verður - fæ þá bara regnbuxur lánaðar - ég á nefnilega bara vindgalla og maður blotnar svakalega í gegn af þeim. Komst að því í gær rassinum mínum til lítillar ánægju!
Ég gerði reyndar heiðarlega tilraun til að fá hjólið hennar systur minnar lánað þar sem það er með breyttum og því hefði ég ekki slett allri bleytunni og drullunni á mig en pabba tókst að skilja það eftir í vinnunni sinni og þar var það læst inni svo að...
En á morgun segir sá lati!

Hafdís skrifaði klukkan 8:29 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli