|
22.7.04
Afhverju gerir fólk sér það að halda í sér svo lengi að það geti ekki staðið kyrrt á meðan það girðir niður um sig buxurnar?
Ég gerði þetta í gær. Þurfti að pissa eitthvað rúmlega 16 en nennti ekki að fara þar sem ég væri hvort eð er að fara að ganga frá eftir tæpan hálftíma. Þegar kom svo loks að því að fara var ég komin í svo svaðalegan spreng að ég átti í stökustu vandræðum með að ganga frá á meðan ég hoppaði hérna fram og tilbaka.
Gott að við vorum bara tvær eftir og hún snéri í hina áttina...
Hafdís skrifaði klukkan 3:45 e.h. |
|