|
|||||||||||||||||||
|
29.6.04
Síðan við fluttum á Stúdentagarða hefur miðaldra maður alltaf lagt leið sína hingað til að spyrja hvort við megum missa nokkrar dósir eða flöskur. Ég gaf honum einu sinni þrjár flöskur eða eitthvað álíka sem var hérna uppi í íbúð - hinar geymi ég niður í geymslu og safna þangað til að ég nenni að fara með þær upp í Sorpu.
Þessi maður kom fyrir skömmu síðan og gaf mér færi á að koma með snilldartakta. Hann spurði eins og vanalega hvort ég ætti flöskur eða dósir sem ég mætti missa en ég svaraði því til að ég drykki ekki gos - sannleikurinn er sá að ég ætla að reyna að fara að minnka við mig gosdrykkjuna og auka á ný sódavatn og vatnsdrykkju. Það sem ég áttaði mig ekki á fyrr en ég lokaði hurðinni var að það stendur fullur haldapoki af flöskum við hliðina á hurðinni sem ég hef ekki gefið mér tíma til að fara með niður. Ég veit ekki hvort hann tók eftir þessu og ég veit heldur ekki afhverju ég hef áhyggjur af því þar sem mér er alveg sama hvað þessum manni finnst. Ég vorkenni honum reyndar soldið fyrir að ganga um stúdentagarða um hábjartan dag og betla flöskur og dósir. Ég sá hann í haust þegar við bjuggum á Hjónagörðum og ákvað að opna ekki þegar hann bankaði hjá mér. Hann bankaði meira að segja tvisvar til öryggis. Ég hélt bara áfram að læra, nennti ekki að fara að skálda eitthvað upp. Ég er nefnilega svo mikill nískupúki að ég vil fara með þessar flöskur sjálf og fá peninginn fyrir þær! Mig munar alveg um þessar nokkrar krónur! Hafdís skrifaði klukkan 10:57 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||