5.6.04
Ég þoli ekki þjófavarnahljóð!

Það er alveg óþolandi þegar fólk er á bílum sem eru með þjófavörn og fara í gang út af minnstu vindhviðu eða snertingu og þurfa að hlaupa út til að slökkva á herlegheitunum. Það er þó verra þegar þetta gerist og fólk er í mikilli fjarlægð og getur því ekki slökkt eða áttar sig ekki á að þetta sé bíllinn sinn.

Ég vaknaði klukkutíma eftir að ég sofnaði í gær við svona læti en var þó ekki lengi að átta mig á því að þetta var bílinn minn sem gaf frá sér þennan hávaða. Ég fór út í glugga og sá fólk vera að fara upp í leigubíl fyrir aftan minn bíl. Nú hófst leitin að bíllyklunum svo að ég gæti farið út og slökkt á þessu - þar sem ég var svona hæfilega mikið sofandi ennþá fannst hún ekki fyrr en hljóðið hætti og ég gat farið að einbeita mér 100% að leitinni.

Ég hljóp svo út á stuttbuxunum, reykjavíkurmaraþonbolnum og inniskónum tilbúin til að berja einhverja bjána sem hefðu verið að fíflast í bílnum mínum. Það var þó enginn nálægur og ég hrósaði happi yfir því að enginn sæi mig í þessari múnderingu.(annað orð yfir ljótan búning) Þegar ég opnaði svo bílinn fór herlegheitin aftur í gang en ég náði að þagga niður í þeim fljótlega! Ég sá ekkert að bílnum í fljótu bragði en viðurkenni að ég skoðaði það ekkert sérlega vel svona fáklædd um miðja nótt. Núna hef ég áhyggjur af þessu þar sem það þarf soldið mikið til að koma þessari græju í gang - hún hefur alla vega aldrei farið í gang áður á þessum tæplega 2 árum sem við höfum haft hana. Ætli sé ekki best að ég fari og líti á vegsummerkin?

Hjartað á mér sló á fullu í nokkurn tíma á eftir og ég var í smá stund að sofna aftur.
Vona að þetta komi ekki fyrir aftur en ef það gerist verður Sveinbjörn vonandi heima til að redda málunum!


Hafdís skrifaði klukkan 9:39 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli