7.6.04
Ég held að ég myndi hafa minna fyrir 8 valdamestu höfðingum heims.
Við erum að tala um að íbúðin var ryksuguð og skúruð. Allt var þvegið úr þvottakörfunni og sumt sett í þurrkarann og gengið frá. Það var skipt um á rúminu og klósettið þrifið hátt og lágt. Ég vaskaði upp. Þvoði felgurnar á bílnum og mælaborðið og helstu svæði. Að þessu loknu fór ég í sturtu og er núna að reyna að upphugsa í hverju ég eigi að fara út á flugvöll til að ég líti sem best út. Hugmyndir eru vel þegnar!
Á morgun þarf ég svo að ryksuga bílinn áður en ég fer út á flugvöll, taka bensín og kaupa táslu með góðri lykt! Svo þarf ég auðvitað að gera mig súper sæta svo að sá sem ég má víst ekki nefna á nafn verði ánægður með mig.

Vá, ég trúi ekki að þessi dagur sé að koma. Finnst reyndar endalaust langt síðan hann fór en ég er samt búin að vera soldið dugleg að hafa eitthvað að gera og því hefur þetta liðið ágætlega hratt.

Ég held að ég sé spenntari núna en ég var fyrir jól og afmæli í denn ;)

Tíhíhí :)

Hafdís skrifaði klukkan 11:21 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli