14.6.04
Ég gleymdi að nefna að ég fékk atvinnutilboð um daginn.
Ung kona hringdi í mig frá Icelandair og bauð mér að koma á námskeið í júní og starfa í kjölfarið hjá fyrirtækinu í júlí og ágúst. Eini gallinn á gjöf Njarðar ef galla skyldi kalla var að starfið sem mér bauðst var á Ítalíu. Ég er ekki þannig af guði gerð að ég geti svikið eitt fyrirtæki á versta tíma til að fara í eitthvað voða spennandi. Mér fannst fyrirvarinn of stuttur þó að ég hafi velt þessu soldið fyrir mér eftir að ég neitaði. Auðvitað er spennandi að vera á Ítalíu í 2 mánuði og undir öðrum kringumstæðum hefði ég hugsað mig um en ég gat ekki farið að segja upp starfi mínu hjá Íslandsbanka með 3 daga fyrirvara! Ég hefði aldrei getað fyrirgefði sjálfri mér það.
Ég var eðlilega mjög uppi með mér vegna þessa, þó að ég hafi verið númer 378 á listanum og hinar 377 hafi allar sagt nei þá var það samt mikill heiður að fá þetta tilboð. Svo að ég sé samkvæm sjálfri mér þá var aðalástæðan fyrir neitun minni þó ekki Íslandsbanki heldur Sveinbjörn Jónsson nokkur en ég hefði ekki getað husað mér að fara án hans - já svona er ég mikill kjáni. Ég hefði pottþétt farið ef hann hefði fengið vinnu í Mílanó!

Já, við erum skrýtin og skemmtileg!

Hafdís skrifaði klukkan 11:08 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli