6.6.04
Ég fór á Stuðmannaball í boði Íslandsbanka í gær, í stuttu máli sagt var brjálað stuð og ég var heldur hress. Komst að því að Breezer, hvítvín, rauðvín og bjór passa ekkert sérstaklega saman! Ég var þó frekar skynsöm og þegar opni barinn kláraðist sparaði ég pening og fjárfesti ekki í neinu áfengu eftir það.
Ég sýndi þó gamalkunna takta og talaði mikið og hátt og reitti af mér brandarana. Vinkonur mínar voru spurðar að því hvort að ég væri alltaf svona hress þegar ég væri í glasi ;) Gaman af því.
Ég dansaði líka mikið og hafði gaman, fór sposk á karlaklósettið til að þurfa ekki að bíða í röð og vakti fyrir vikið mikla athygli!
Ég var sjálfri mér þó trú og fór heim um 1 leytið og fór að sofa. Þá var ég líka búin að djamma í 7 tíma og það er svona helst til mikið fyrir mig!
Þetta kvöld var sérlega vel heppnað og við viðskiptavers skvísurnar skemmtum okkur svakalega vel - Arnar fékk reyndar að fljóta með og ekki eyðilagði hann fyrir. Hans sérverkefni fólst þó í því að nappa hvítvínsflöskum handa okkur svo að við gætum setið áfram inn í búningsklefa. Hann stóð sig eiginlega OF vel!
Það er orðið soldið langt síðan ég skemmti mér seinast svona vel!

Ég var ekki eins hress þegar ég vaknaði í morgun!

Hafdís skrifaði klukkan 6:05 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli