13.6.04
Ég fór á Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. Það er ekki hægt að lýsa þessar sýningu með nógu sterkum orðum, hún er alveg svakaleg! Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel og þetta er ein albesta sýning sem ég hef séð ef ekki sú besta! Við vorum öll, Sveinbjörn, mamma og tengdamamma, sammála um ágæti þessarar sýningar og lýstum öll yfir vilja til að fara aftur. Hún er vel leikin, frábærlega leikstýrt og hefur mikið skemmtanagildi. Ég mæli hiklaust með henni!

Okkur var svo boðið í afmæli í gær en við vorum bæði slöpp í maganum og bara almennt slöpp og treystum okkur ekki til að fara! Vona að það hafi verið brjálað stuð hjá þeim sem voru ekki jafn lélegir og við!

Dagarnir okkar ganga annars bara út á það núna að horfa á DVD myndirnar sem Sveinbjörn kom með heim. Shrek 2 varð fyrir valinu í gær, mjög góð en kemst ekki með tærnar þar sem 1 er með hælana! Samt fín skemmtun!

Núna erum við að horfa á F R I E N D S í milljónasta skiptið, það er ekki hægt að verða leiður á þessum þáttum. Ég get horft endalaust á þá!

Hafdís skrifaði klukkan 3:08 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli