23.6.04
Ég er búin að komast að því að líkur þess að merjast við hnjask aukast með aukinni fitu! Ég merst þannig betur núna en ég gerði á mínum fitusprengdu árum.
Af þessari uppgötvun minni áætla ég að það sé hægt að mæla fitumagn með því að líta til marbletta en þó verður að gera ráð fyrir brussuskap í útreikningum.
Ég finn ennþá meira til núna þegar ég rekst utan í eitthvað en ég gerði áður fyrr - sem er ekki gott þar sem ég rek mig mjög mikið í sökum brussuskaps!

Annars ætlaði ég að koma með einhverja ljóskusögu af sjálfri mér sem ég man ekki. Hún rifjast e.t.v upp fyrir mér síðar!

Forðumst marbletti - æfum meira!
Landlæknir.

Hafdís skrifaði klukkan 3:40 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli