16.6.04
Það er nóg að gera hjá mér um helgina.
Ég er leiðsögumaður hjá bæði danska og írska frjálsíþróttaliðinu en þau keppa bæði á Evrópubikar um helgina. Það verða 2 íslendingar með því danska en ég reikna með að þurfa að hafa smá fyrir því írska þar sem einn þeirra tók sig til og kjálkabraut Reyni Loga í fyrra. Ætli ég verði ekki í því að leysa þá út úr fangelsi ;)Við verðum reyndar aðallega í einhverju reddi og skutli. Stöð.
Það er hins vegar ekki nóg að vera í þessu því ég verð líka dómari á mótinu. Sem sagt nóg að gera hjá mér um helgina! Það er bara gott. Reikna með að verða þreytt eftir helgi - úff,púff!

Hafdís skrifaði klukkan 11:15 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli