11.6.04
Er þetta fólk ekki að grínast?

Ég get alveg sæst á að eigendur megi ákvarða hvort megi reykja eður ei á eignum þeirra en ég er alls ekki sátt við að reykingar séu bornar saman við sykurneyslu, ofneyslu majóness og aðrar neysluvörur sem kunna að valda offitu og hjartavandræðum. Það er ekki hægt að bera saman vörur sem annars vegar valda bara neytandanum skaða og hins vegar vörur sem valda öllum skaða sem eru í nágreni við neytandann þegar vörunnar er neytt.
Mér finnst þetta vera algjört rugl og augljóslega hugsaði sá hinn sami og skrifaði þessa grein ekki alveg út í það sem hann var að skrifa.

Það er hægt að líta þannig á málið að neysla vara sem eru óhollar líkamanum skaði ekki bara neytandann heldur fjölskyldu hans líka ef neytandi deyr um aldur fram en það er ekki sams konar skaði og að deyja úr óbeinum reykingum.

Efast um að þetta komi einhverjum á óvart en...

ég er hlynnt banni á reykingum!

Hafdís skrifaði klukkan 11:17 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli