10.6.04
Brjálað að gera í dag.
Dó næstum úr ofnæmi í dag, langt síðan ég hef verið svona slöpp. Bólgin augu og ógleði, hausverkur og læti - ekki sniðugt.

Í kvöld var svo lokaæfing dómara fyrir Evrópubikarkeppnina sem verður haldin á Laugardalsvelli eftir rúmlega viku og við Sveinbjörn þurftum að vera þar frá 20 til 23 að dæma og starfa. Voða gaman.

Ég er strax skárri af ofnæminu, frekar fúlt samt hvað ofnæmistöflur eru lengi að virka og það er ekkert hlaupið að því að fá tíma hjá lækni á þessum síðustu og verstu tímum.

Á morgun er það Rómeó og Júlía í Borgarleikhúsinu og svo er afmæli á laugardag - brjáluð dagskrá!

Verð að fara að sofa, þarf að vakna snemma!
Góða nótt,

Hafdís skrifaði klukkan 11:06 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli