6.6.04
Það að fara á klósettið í barnaafmælinu sem ég var í áðan rifaði upp ljúfsárar minningar. Þannig er mál með vexti að þegar ég var að byrja í menntaskóla átti ég forláta appelsínugula peysu sem var með áletrun framan á. Fyrir enn fleiri árum síðan hafði þessi peysa tilheyrt fótboltakappa úr Einherja sem er íþróttafélagið á Vopnafirði. Það var mikið grín gert að þessu og á vissum tímapunkti tóku nokkrir ungir piltar sig til og sungu GROHE - er vatn og vellíðan í hvert einasta skipti sem þeir mættu mér á göngum skólans hvort sem ég var í peysunni eður ei!

Á baðherberginu voru sem sagt ofangreindar vörur sem rifjuðu þetta upp!

Hafdís skrifaði klukkan 5:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli