4.6.04
Það á að banna innivinnu í svona góðu veðri! Það væri voða ljúft að geta skutlast með tölvuna út og sitja bara og pikka í sólinni.
Í tilefni dagsins skellti ég mér í pils og er því skvísuleg mjög í vinnunni!

Sveinbjörn kemur eftir 4 daga - ég get varla beðið. Veit reyndar að tíminn á eftir að líða hratt þar sem ég hef svo mikið að gera þangað til.
Á eftir að taka til heima, ég er svo lítið heima og því hendi ég dótinu bara hingað og þangað þegar ég er heima við. Systir mín er líka að útskrifast í dag, smá líkur á því að ég láti sjá mig þar!

Ég er svo að fara að starfa á frjálsíþróttamóti um helgina og horfa á það um leið!

Á laugardagskvöldið er svo stuðmannaball Íslandsbanka, það verður pottþétt mikið stuð - Koma nú!

Á sunnudaginn eftir mótið er ég svo að fara í afmæli hjá litla frænda mínum og það verður væntanlega fjörugt! Hann hringdi sjálfur í mig í gær og bauð mér, hann er svo mikið krútt þessi elska. Verst að Sveinbjörn keypti gjöf handa honum sem hann fær ekki fyrr en í næstu viku - held samt að krökkum finnist alltaf jafn gaman að fá pakka!

Ég var stungin um seinustu helgi og var smá sár en sá svo í gær að það var broddur í sárinu og plokkaði hann út. Ein taugin mín var líka með leiðindi í gær, mig verkjaði frá þumalputta og upp í háls - þetta var akkúrat taugin sem sárið var hjá! Mamma spekingur hélt að þetta væru kannski einhver ofnæmisviðbrögð hjá mér - mér líður alla vega betur í dag.

Annars er ég bara langþreytt og þarf að sofa í svona 10 tíma í nótt. Ekki gott að sofa lítið margar nætur í röð - ísbjörninn sem sefur við hliðina á mér er ekki alveg að standa sig. Hann er ekki flinkur knúsari - vill bara fá knús.

En back to business...

Hafdís skrifaði klukkan 9:40 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli