|
|||||||||||||||||||
|
18.5.04
Sveinbjörn fór til Kína fyrir tæplega klukkutíma síðan. Ég get ekki sagt að ég hafi staðið mig eins og hetja þar sem ég HATA kveðjustundir og get bara alls ekki haldið tárunum niðri. Ég hef alltaf verið svona og verð áreiðanlega alltaf. Ég var þó örugglega búin að taka út eitthvað af skammtinum þar sem ég byrjaði að væla á sunnudaginn - ég veit að ég er erfið. Gerði honum sko ekki auðvelt fyrir. Bauðst meðal annars til þess að hjálpa honum að taka upp úr töskunni í morgun en það var síðasta úrræðið - ég var búin að bjóða honum ýmislegt áður sem var meira spennandi. Minnti hann til að mynda reglulega á að það væri 21 dagur þangað til að hann kæmi heim!
Ég ætla að reyna að standa mig í vinnunni í dag og halda haus, ekki gott að eyða öðrum deginum í vinnunni í það að grenja. Ég sit líka svo langt frá klósettinu svo að það væri ekki alveg að gera sig. Ég reikna með að drepast úr þreytu þar sem ég veit ekki hvort ég sofna eitthvað aftur (klukkan er að verða sex). Ég hef verið að velta því fyrir mér að flytja bara heim til mömmu og pabba á meðan. Reyndar þyrfti ég að sofa í herberginu hennar Sæunnar á meðan og rúmið hennar er ekki eins gott og okkar - heitir væntanlega mitt rúm núna! Þeir sem vilja ekki sjá mig grenja í dag eru vinsamlegast beðnir um að minnast ekki einu orði á það að Sveinbjörn sé farinn eða vorkenna mér á neinn hátt. Já, ég er vælukjói! Úff, þetta verða langar vikur... Hafdís skrifaði klukkan 5:53 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||