12.5.04
Seinasta prófi þessarar annar er lokið. Ég veit ekki alveg hvernig mér gekk þar sem þetta var krossapróf og því erfitt að segja. Það er reyndar ekki dregið frá fyrir rangt svar svo að líkur á góðu gengi eru meiri en ella.
Það var enginn neitt sérlega kátur með prófið enda var það heldur strembið og að mínu mati ekki alveg í takt við námskeiðið! Ég er þó alla vega komin með 15% rétt svo að það er þó nokkuð jákvætt.

Í dag ætla ég að njóta þess að gera mest lítið og fara á æfingu.
Reyndar hafði ég hugsa mér að þrífa svínastíuna hátt og lágt en ég hugsa að ég nenni ekki að gera það fyrr en á morgun!

Sumarið er komið!

Hafdís skrifaði klukkan 3:32 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli