24.5.04
Nú er mér nóg boðið!¨
Það er ekki hægt að vera svona ótillitsamur.
Ég fór upp til að ræða við nágranna mína í efra en þau svöruðu ekki! Ég er farin að hallast að því að þau séu eiturlyfjasjúklingar! Þau hlusta alla vega á sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur og í morgun hoppuðu þau meira að segja í takt við tónlistina í hælaskónum sínum!
Klukkan var sem sagt 6.20 þegar ég vaknaði! Þið getið ímyndað ykkur hvað ég er kát. Ég hringdi meira að segja í lögguna til að spyrja hvenær væri leyfilegt að vera með hávaða á morgnana. Hann sagði að þetta væri á mörkunum, það má víst ekki raska næturró manna. Fyrir mér er ennþá nótt. Ég ætlaði ekki að biðja hann um neitt, þurfti bara að sjá hvað hann myndi segja. Strákurinn sem svarðaði á 112 var skilningsríkar, sagði að þetta væri nú full snemmt en löggunni fannst ég held ég bara vera rugluð ung kona!
Ég ætla að tala við umsjónarmanninn hérna á eftir og láta hann gera eitthvað verulega andstyggilegt við þessi gerpi. Núna veit ég hvað þau heita þar sem ég fór upp og hringdi bjöllunni til að segja þeim til syndanna - þau þorðu ekki að opna. Sáu örugglega hvað sauð á mér!
Núna eru þau hætt að spila og ég ætla að hvíla mig í hálftíma!

R U G L!

Hafdís skrifaði klukkan 6:44 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli