10.5.04
Nú dámar mér, það er búið að breyta uppsetningunni á blogger. Ég veit ekki alveg hvað ég er hrifin af þessu breytta útliti. Ég er reyndar yfirleitt hlynnt breytingum en þegar kemur að einhverju svona tekur það tíma að venjast nýju. Kunni alveg á hitt en þarf að skoða þetta eitthvað betur sýnist mér. Reyndar eru allar sömu stillingarnar en núna get ég ekki lesið hvað ég skrifaði seinast - humm, ég þarf að hugsa þetta aðeins áður en ég tek ákvörðun.

Ég er annars bara búin að hafa það gott seinustu tvo daga, hef lært mjög takmarkað. Er of lítið stressuð fyrir þetta seinasta próf mitt þar sem það er ekki mikið námsefni til prófs! Ég er samt sem áður að hugsa um að tækla þetta allt einu sinni í dag og svo aftur á morgun.

Ég þoli ekki þegar ég reskt í snertiflötinn svo að örin færist ofar í textann og allt ruglast sem ég er að skrifa - þetta gerist mjög reglulega. Reyndar fara msn gluggarnir líka oft niður hjá mér - tekst að henda þeim niður með peysunni. Fötin mín eru svo ofur klár að þau kunna á tölvur!

Nýja hárið mitt er ekki bara gleðilegt, ég þarf að blása það og slétta til að það sé almennilegt og ungfrúin nennir því sko ekki alltaf. Hárblásarinn minn tók líka upp á því að bila strax eftir klippinguna svo að ég verð alltaf að láta það þorna og slétta það svo! Núna þarf ég líka að setja einhver efni í það svo að það haldist fínt og þá verður hárið fyrr skítugt og allt í tómu tjóni bara! Ælti ég þurfi ekki bara að læra betur á þetta!
Það fylgja þessu reyndar líka endalaust margir kostir, hárið á mér þornar á 2 tímum í staðinn fyrir 4!
Svo er þetta svo miklu léttara og betra...

Best að einbeita sér að réttmæti í rannsóknum,

Ciao.

Hafdís skrifaði klukkan 11:33 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli