19.5.04
Missti vatnið...

Ég sýndi mína innri konu ítrekað í vinnunni í gær. Þegar ég var að fá mér vatn í flöskuna mína tókst mér að ýta of oft á takkann af einskærri óþolinmæði - það er víst ekki sniðugt að fikta, og með því bunaði út úr vélinni löngu eftir að flaskan mín var full. Ég neyddist til að horfa á vélina sulla á gólfið og sækja svo klósettpappír til að þrífa. Þetta vakti nokkra lukku frammi á gangi þar sem enginn þekkir mig - gat þó hrósað happi yfir því að þetta kom ekki fyrir inni á deildinni minni. Þær hefðu sko hlegið að mér.

Síðar um daginn ákvað ég að ég þyrfti að gera eitthvað róttækt til að halda mér vakandi fram til 4 og ætlaði að fá mér soldið kaffi. Mér fannst þó líklegt að ég yrði svakalega ofvirk af svona koffein skammti og ákvað því að fá mér te í staðinn. Mér tókst að setja heitt vatn í bolla án nokkurra áfalla og taka mér tepoka. Hins vegar flæktist það eitthvað fyrir mér hvernig maður setur bolla á skrifborð og því helltist helmingurinn úr bollanum yfir skrifborðið, lyklaborðið slapp þó sem betur fer. Enn á ný þurfti ég að fara fram til að sækja klósettpappír til að þurrka skrifborðið. Í þetta skiptið hellti ég á mitt borð og því sáu þetta flest allir og hlógu að mér. Það er reyndar skemmtileg tilbreyting þessa dagana þar sem Sveinbjörn á heldur erfitt með að gera grín að mér í gegnum símann!

Núna geymi ég klósettrúllu í skáp hérna rétt hjá þar sem slysin gera víst ekki boð á undan sér ;)

Hafdís skrifaði klukkan 1:46 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli