16.5.04
Leiðinleg júróvisíonkeppni náði ekki að drepa steminguna hérna hjá okkur í gær.
Við grilluðum saman í gær og borðuðum yfir keppninni. Umh, þetta var svo góður matur. Grillað lambafillét er eitt af því besta sem ég fæ...svo grilluðum við banana með súkkulaði þegar það fór aðeins að sjatna í fólki - hann var líka góður!
Við sátum svo bara og skemmtum okkur, nema kannski akkúrat á meðan stigagjöfin fór fram. Þessi keppni er komin út í bull, það er ekki verið að velja besta lagið heldur er verið að gefa nágrönnum og félögum stig en reyndar stundum pólitískum andstæðingum til að sleikja þá soldið upp. Það var alla vega augljóst hver fengi hvað mörg stig frá hverjum! Það er augljóst að það þarf að endurskoða reglurnar í þessu eitthvað! Við töpum líka svo á því að eiga enga nágranna! Annars fannst mér strákurinn standa sig vel og reyndi að halda uppi heiðri hans hérna í gær þar sem vinir mínir telja hann vera homma, ég er ekki sammála.
Við kíktum svo aðeins niður í bæ í gærkvöldi en það var bara voða stutt, röltum bara smá og fórum svo heim - ég var dauð úr þreytu enda lítið búin að sofa. Svo voru líka raðir alls staðar og mín hefur ekki mikla þolinmæði í svoleiðis bull.

Í dag hef ég verið að undirbúa brottför míns heittelskaða. Ef ég dúlla mér nógu mikið við þetta er ekki víst að hann komist...Nei, ég er svona að vinna í að sætta mig við þetta. Bergrós á eftir að vera í Flórída í rúmlega 85 daga og því ætti ég að lifa 21 af...haldið þið það ekki? Ég er nú soldill nagli þó að ég sé líka grenjuskjóða!

Hafdís skrifaði klukkan 3:43 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli