5.5.04
Jæja, síðu liðuðu lokkarnir mínir fengu að víkja í dag. Núna er bara stutt-og slétthærð snót tekin við. Ég fékk smá sjokk í fyrstu þar sem ég hélt að hárið yrði síðara en þetta venst trúlega. Hef fengið ótrúlega góð viðbrögð í dag, alltaf gaman þegar fólk tekur eftir nýju klippingunni þinni. Sveinbjörn tók nokkrar before myndir af mér, bæði í gærkvöldi og í morgun og svo bjargaði ég mér sjálf rétt í þessu, reyndar koma sjálfsmyndir aldrei nógu vel út en þið verðið bara að láta þær duga þar til þið sjáið mig sjálf!
Hérna sjáið þið mig í gærkvöldi...


og framan á...


Svo kemur nýja lúkkið!



Hvernig líst ykkur svo á?
Fleiri myndir af mér eru í myndaalbúminu! ENJOY!

Hafdís skrifaði klukkan 5:35 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli